Verðbólga meiri hjá aðildarríkjum Myntbandalags Evrópu Verðbólga var meiri að meðaltali hjá þeim ríkjum sem aðild eiga að Myntbandalagi Evrópu (EMU) á síðasta ári en hjá EES-ríkjunum. Verðbólga síðustu tólf mánuði mældist 2,5% að meðaltali í ríkjum EES en mældist á sama tíma að meðaltali 2,7% í aðildarríkjum Myntbandalagsins. Mest verðbólga hjá EES-ríkjunum var hér á landi eða 9,8% að meðaltali. Mest verðbólga hjá aðildarríkjum Myntbandalagsins var á Írlandi eða 5,2% að meðaltali. Verðbólgan...