Í hásölum skýjanna englarnir þagna á hvítfleymið stór skugginn fellur nú komin er stundin, endalok ragna inn ríða morðingar, mellur. Himnaríki breytist í Sódómu svarta siðurinn breytist úr lofgjörð í fryggð englarnir sáran í angist þeir kvarta eldskýin ríða um Drottins byggð. Skaparinn vaknar frá værasta blundi vondur í skapinu stígur hann út sem dillandi skottið á stressuðum hundi sýpur hann kveljur og hrekkur í kút. … Brunnin er höllin sem áður var stærst sót birtu í loftinu hylur í illan...