"1. gr. Höfundur að bókmenntaverki eða listaverki á eignarrétt á því með þeim takmörkunum, sem í lögum þessum greinir. Til bókmennta og lista teljast samið mál í ræðu og riti, leiksviðsverk, tónsmíðar, myndlist, byggingarlist, kvikmyndir, ljósmyndalist, nytjalist og aðrar samsvarandi listgreinar, á hvern hátt og í hverju formi sem verkið birtist. Uppdrættir, teikningar, mótanir, líkön og önnur þess háttar gögn, sem fræðslu veita um málefni eða skýra þau, njóta verndar með sama hætti og...