Pabbi vildi fá að vita hvað mig langaði í jólagjöf fyrir stuttu. Ég leit djúpt í augun á honum. „Drekatönn…“ sagði ég. „Drekatönn?“ spurði hann,„hvað er það, einhverskonar spil?“ „Nei, drekatönn.“ Mér langar í drekatönn. Hann sagði mér að hætta að bulla. Svo ég bjó til óskalista: Óskalistinn minn Ef ekki drekatönn… þá: Dyn kattarins eða skegg konunnar eða rætur bjargsins eða sinar bjarnarins eða anda fisksins ellegar fugls hráka. Ég er hræddur um að ég fái enga jólagjöf.