Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér vegna þess að ég hefði áhuga á svona áhugamáli. En áhugamálin hérna eru oftast um hluti sem njóta almenna vinsælda og þannig. Ég held að ég sé bara raunsær.
Kannski er hægt að fá þannig kork inni á leikjaáhugamálinu. Því miður held ég að það sé ekki nógu mikið af hugþrautarspilurun á Íslandi til að þetta verði að heilu áhugamáli hérna.
http://www.adventuregamers.com/newsitem.php?id=483 Þetta virðist vera fín gömul hugþraut frá 1995. Þetta er freeware og þar að leiðandi allur leikurinn sem framleiðendur leiksins hafa ákveðið að gera frían til downloads. Til þess að spila hann þarf þennan emulator: http://www.scummvm.org/
Mér líst vel á hann. Er búinn að klára demo númer eitt en á eftir að spila demo númer tvö. Versta við hann að mínu mati er að gervigreindin er það góð að það er virkilega erfitt að spila hann. Alla vega fyrir svona miðlungs spilara eins og mig.
Runaway er ansi fyndin og skemmtileg hugþraut en ég held að hún hafi ekki komið til Íslands. Annars hefur verið frekar lítið um grínhugþrautir undanfarið. Meira um svona spennu og dularfullar hugþrautir. Svo er ágætis húmor í broken sword the sleeping dragon þótt grínið sé ekki neitt rosalega áberandi þar.
Nei þetta er eingöngu fyrir gamlar hugþrautir. Lucasarts hugþrutir , fyrstu 2 broken sword leikina, beneath a steel sky og þannig hugþrautir framleiddar frá 1990 til 1997 eða þar um bil.
Hahahahah ég hef aldrei séð þennan þátt nema þegar verið er að auglýsa hann og úffff það virkað ekki gaman að sjá það. En miðað við þessar lýsingar þá er þetta jafn spennandi og þátturinn áðan á popptivi þar sem náunginn var að raka sig og var í viðtali um leið.
http://scummvm.sourceforge.net/ Emulator sem gerir þessa gömlu lucasartsleiki spilanlega á nýrri stýrikerfum. Virkar líka í sambandi við fleiri gamlar hugþrautir.
http://scummvm.sourceforge.net/ Emulator sem gerir þessa gömlu lucasartsleiki spilanlega á nýrri stýrikerfum. Virkar líka í sambandi við fleiri gamlar hugþrautir.
Infernal machine er leikur í stíl við tomb raider en ekki hugþraut. Meira svona hopp og sveiflur. Veistu nokkuð hvort hægt sé að fá gömlu larry leikina. Ég sá að sierra gaf út allt safnið í einu pakka fyrir nokkrum árum og er að velta fyrir mér hvort það hafi komist hingað. Ef þú ert spenntur fyrir nýjum hugþrautum þá er syberia 2 á leiðinni og jack the ripper líka. Jack er meira svona miðlungs leikur en ágætur samt held ég. Svo mæli ég með syberia og the longest journey það eru tvær...
Leikurinn frýs alltaf þegar ég loada í boss bardaganum. Er einhver hérna líka með það vandamál. Mér finnst þessi boss alltof erfiður. Ég er að gera mitt besta en næ aldrei meira en 15% af orkunni hans.
Ég man að ég keypti mér lucasarst pack 6 eða einhvernig þannig kassa með 6 geisladiskum með ýmsum leikjum. Mig langaði í full throttle og hann var í þessum safnpakka þannig ég keypti hann. Þar var monkey 1 og 2 og demo af númer 3. Ég hafði ekkert heyrt um um þessa leiki. Hafði mjög gaman af þeim og svo vel vildi til að monkey 3 var að koma út á svipuðum tíma þannig ég spilaði þessa 3 leiki á sama tímabili. Svo var líka ein hugþraut þarna sem er ekkert mjög þekkt en mér fannst hún ágæt sem...
Já þetta eru fínir lucasartsleikir. Því miður er búið að aflýsa sam and max 2 nokkrum mánuðum fyrir útgáfudaginn þannig að þeir hjá lucasarts eru ekki að standa sig jafn vel gangvart hugþrautaraðdáendum eins og í gamla daga. En hefur einhver hérna heyrt orðróminn um monkey island 5.
Ertu búinn með lokaóvininn? Ég las að það væri best að nota haglabyssurnar í þeim bardaga en ekki eldflaugarnar. Alla vega dúndraði ég 10 til 20 eldflaugum í hann og hann missti svona 5% af sinni orku
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..