Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta hefur valið hópinn sem mætir Dönum í æfingaleikjum á föstudag og laugardag. Fyrri leikurinn fer fram í Austurbergi en hinn síðari í Smáranum í Kópavogi. Liðið sem mætir Dönum um næstu helgi: Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson, Roland Eraze og Birkir Ívar Guðmundsson. Aðrir leikmenn: Guðjón Valur Sigurðsson, Logi Geirsson, Bjarni Fritzson, Einar Örn Jónsson, Róbert Sighvatsson, Róbert Gunnarsson, Vignir Svavarsson, Dagur Sigurðsson,...