Íslendingurinn, Ólafur Stefánsson, er í liði ársins í þýsku deildinni sem Heiner Brand, landsliðsþjálfari Þjóðverja, hefur valið í samvinnu við handboltatímaritið Handball-Woche. Ólafur er eini Íslendingurinn í liðinu en hann en hann á sér fast sæti í liðinu, enda er hann einn af bestu leikmönnunum í Þýskalandi. Liðið er þannig skipað, markvörður er, Henning Fritz, Kiel, ÓlafurStefánsson, Magdeburg, Markus Baur, Lemgo, Volker Zerbe, Lemgo, Christian Schwarzer, Lemgo, Florian Kehrmann, Lemgo,...