ég er ekki að tala um að láta eitthvað mega kitt á hann og spoiler. Bara að laga bremsur og púst, lækna ryð í krómi og boddýi og svoleiðis… En ef þér finnst ryð flott ætla ég ekki að bögga þig ;)
ég elska svona öskubakka. Það væri líka geðveikt að taka hana til gullsmiðs og láta hann grafa eitthvað kúl í hana (þ.e.a.s. ef þú ert að fara að eiga hann í langan tíma)…
Mæli alls ekki með þessum skóla. Þú getur gert miklu gáfulegra en að eyða þeim í þetta. Þú færð einnig svo lítið út úr þessum skóla. Svona var dæmið sett upp þegar ég var að spá í þessu. 1. mánuður: semja lag og útsetja það. 2. Mánuður: Búa til grófa demo útgáfu af laginu í Reason (tölvugerðar lúppur) 3. Mánuður: Taka lagið upp. 4. Mánuður: Eftirvinnsla. Mér finnst maður alveg geta sleppt 1. og 2. mánuðinum því það gagnast manni takmarkað í hljóðvinnslu á hærra stigi.
Þegar ég gerði þetta síðasta sumar létum við fjölfalda og prenta á diskinn í myndbandavinnslunni og keyptum hulstrin einnig af þeim þar. Hjá þeim kostaði þetta 30.000 100 upplög en við prentuðum stóra mynd á diskinn sjálfan. Svo létum við blindravinnustofuna plasta þetta fyrir okkur…
Ég skal gera þetta fyrir ykkur. Ég er að vinna á Pro Tools í Kjallaranum og get kennt ykkur nokkur trikk í leiðinni. Talið bara við mig í síma 692-1817 og við mælum okkur mót sem fyrst. Kv. Vikto
sama og mjasi87 sagði. Ég mundi halda að condenser mic væri mun betri í þetta en dýnamískur. Ef þú vilt halda verðinu í lágmarki mundi ég skoða Samson Overhead mic eða MXL 603 (samson í tónastöðinni/MXL í hljóðfærahúsinu) en ef þú vilt eitthvað í betri gæðum þá væri Shure málið (tónabúðin).
þetta “ég ætla” var búið til áður en síðasta trivia var sent inn, en ég get sagt þér að það er annað trivia á leiðinni, ég er bara ennþá að bíða eftir að tölvan mín sé komin í lag ;)
farðu á digidesign.com og farðu í support eða eitthvað þannig. Þú getur leitað á digidesign síðunni af þessu en ef þú finnur þetta engan veginn farðu geturu farið á duc.digidesign.com (duc = digidesign user conference) og spurðu að þessu þar. Þeir gefa þér straight svör.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..