Jæja, ég er þá ekki ein í heiminum :)…þekki nefnilega ekki neinn sem á naggrísi. Hvað heita naggrísirnir þínir? Minn er nú bara kallaður Grísla eða Gríslos. Og það er alveg dásamlegt að fylgjast með henni þegar maður nefnir nafnið hennar, þá lítur hún svona upp og sperrist öll. Hvað gefuru naggrísnum þínum að borða? Minn fær alltaf bara vatn, korn og kínakál. Kveðja, Xenia