Þetta heitir skjalafals og er lögbrot. Þú getur átt það á hættu að skilríkin verði tekin af þér, þú kærð/ur, látinn borga sekt eða sitja inni og getur jafnvel lent í því að mega ekki ferðast erlendis næstu árin. Annars er svarið þitt einfaldlega aseton og penni.
Fanta lemon og landi, hin gullna blanda. Þú getur samt notað hvað sem þér finnst gott að drekka. Annars í guðana bænum ekki kaupa landa nema þú sért hundrað prósent á því að hann sé ekki rusl. Þá á ég bæði við innihaldið og áfengismagnið.
Í raun og veru, því þá er það löglegur vímugjafi, rétt eins og alkahól. Ef þú misnotar alkahól (löglegan vímugjafa), þá verður þú alkahólisti. Ég veit ekki hvað maður yrði ef maður færi að misnota löglegt kannabis.. Kannabisisti? Hvað sem því líður eru ólöglegir vímugjafar og misnotkun á þeim það sem gerir fólk að dópistum í skilgreiningu nútímasamfélagsins.
Hvernig pillur? Ef þú átt við lyf, t.a.m. úr apóteki, þá eru þær löglegar. Ef þú hinsvegar tekur þær í öðrum skömmtum en ráðlagt er, eða notar þær á lyfseðli einhvers annars, þá eru þær orðnar að læknadópi.
1) Menntaskólanum á Egilsstöðum 2) Já. Að öllum líkindum franska eða þýska (jafnvel með íslensku og/eða þýðingarfræði) í Háskóla Íslands. 3) Annað hvort eitthvað sem viðkemur tungumálum (þýðandi, kennari, tour-guide, túlkur..) eða kokkur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..