Var að skoða umræður um sorp á /stjornendur, semsagt leitaði í ítarlegri leit að “sorp”. Gaman gaman ójá! Svo komst ég einhvern veginn á þennan þráð út frá því.
Kannski því þetta er notað til að meta einkunnina? Og svo eru þarna inni líka viðmiðin sem farið er eftir þegar rituninni er gefin einkunn, kannski upprunið þaðan.
Vá, þetta er eins og gamla sófasettið sem var heima hjá mér, nema það var brúnt en ekki grænt. Lítur út fyrir að vera þægilegur, en ég myndi samt aldrei vilja svona stól, og gamaldags og ljótur fyrir minn smekk :}
http://www.hugi.is/eurovision/articles.php?page=view&contentId=2207528 Svörin þarna benda til annars, það eru örugglega auglýsingatekjur og fleiri tekjur, ætti alveg örugglega að vera hægt að skella upp einni svona keppni ef til þess kæmi.
Og allar þessar undirstrikunaræfingar, tugir blaðsíðna fara bara í þær, maður þarf varla meira en svona eina eða tvær við hvert atriði, og fær tíu! Ég þoldi það ekki við þetta, enda voru þessar bækur að mestu óunnar hjá mér. Samt kann ég alla þessa málfræði mjög vel, þessar bækur hjálpa ekkert.
Málfinn? Ekki hata hana, þægilegasta íslenskuuppflettibók sem ég hef kynnst. Ef þú hins vegar áttir við bláu sagnorðabókina er ég sammála þér, mjög leiðinleg bók, líkt og bæði Fallorð og Smáorð.
Það er nú líka þannig í Krónunni, eins og í Hagkaup, þjónustan góð og kurteisin í hávegum höfð. Kannski þess vegna sem Krónan er pínu lítið dýrari en Bónus… En ojæja, Krónan býður upp á aðeins meira, t.d. bakarí, kjötborð, lífrænadeild og fleira.
Hún gleymdi henni ekki neitt… Svo er hin hliðin. Fólk sem reynir og reynir og reynir að vera öðruvísi, svo fólk taki alveg örugglega eftir því að það sé öðruvísi. Þetta byrjaði með einhverjum nokkrum að reyna að vera öðruvísi en restin. Í MH til dæmis er þessi “öðruvísi” hluti orðinn svona sirka helmingurinn af skólanum. Ég er ekkert að skíta á MH, ég tek hann bara sem dæmi af því að það er skólinn minn. En come on, þetta er ekkert öðruvísi lengur. Þetta er alveg eins.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..