Frábær saga! Bara eitt að, aldrei að biðjast afsökunar fyrirfram! Ég byrjaði á að lesa “afsakið enskuna” og hugsaði með mér, æi nei.. nenni ekki að lesa svona langa sögu sem er skrifuð á lélegri ensku! En þar sem ég er admin og þessi grein beið eftir lestri, þá lagði ég í hann. Sem betur fer. Því þetta er frábær saga á mjög góðri ensku. Þú varst bara búin að dæma sjálfa þig fyrirfram. Aldrei að gera það, láttu aðra um að dæma skrifin þín, ekki gera það fyrir þá. Tzipporah