Jæja ég er heima í smástund. Var að koma að norðan og er svo á leiðinni upp í bústað og verð þar í viku. Það var skemmtileg ferð norður. Byrjaði á að hitta BudIcer og borða með honum kvöldmat á föstudag (skrýtnustu pizzu sem ég hef á ævinni smakkað… með nautakjöti, bernais og frönskum kartöflum). Fór svo áfram á fjölskyldumót á fallegu tjaldstæði. Þangað kom svo vinur eins frænda míns og kom þá í ljós að hann er líka hugari og hefur stundum kíkt hér inn. Frekar nýr hér á síðunni, AlliJ held...