Ef ég væri ekki svona slæm í bakinu og í svona lélegu formi þá væri ég alveg til í að koma og hjálpa til. Sjáum til á næsta ári. Ég var mikið í sveit þegar ég var lítil en þegar ég var um 7 ára flutti konan sem við fórum alltaf til, í bæinn. Eftir það var ég í sveit fyrir norðan hjá frænda mínum sem var bara með kýr, hund og hænur. Svo það var ekki mikið um smalamennsku þar svo sem… En kýr eru líka og hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Mín uppáhaldsdýr eru hundar, kýr og gíraffar...