Sem betur fer held ég að flestir trúaðir, allavega hér Íslandi, álíti voðaverk Guðs í gamla testamentinu ekki til eftirbreytni. Í yfirgnæfandi meirihluta líta þeir upp til Jesú sem fyrirmyndar um góðmennsku og kærleika. Enda snýst Lútersk trú að mínu besta viti hvað mest um það að fylgja orði Jesú til að frelsast undan erfðasyndinni. Þess vegna sé ég ekki heldur hvað græðist að segja þessu fólki, sem að öllum líkindum er mun verr að sér í biblíusögunum en þú, af voðaverkum Guðs. Það er ekki...