Ég ætla ekkert að fara í grafgötur með það að ég hata söngvakeppnir, sama hvort þær heita Eurovision, idol eða eitthvað annað. Fátt veit ég leiðinlegra. Ég sá því enga ástæðu til að fylgjast með þessari grautfúlu keppni, svo að ég heyrði lagið aldrei live. Útvarpsútgáfan var of léleg til að hlusta á, svo mikið er víst.