Ég keypti frekar dýr vetrardekk (án nagla) í fyrrahaust og hef aldrei verið jafnánægður með vetrardekk! Þetta eru Nokian Hakkapeliitta Q og er selt af MAX1 (við Bíldshöfða á móti Brimborg). Kosta reyndar slatta en eru alger snilld, hljóðlát, grípa vel bæði í hemlun og við hliðarskrið. Hins vegar hefði ég s.s. átt að kaupa Hakkapeliitta NRW sem eru hönnuð fyrir mið-evrópskar (norður-Þýskaland) aðstæður en ekki Q sem er hannað fyrir skandinavískar aðstæður. Þetta dekk er í það mýksta fyrir...