Já, aðallega stigagjöfinni samt. Vinahópurinn hafði engan sérstakan áhuga á lögunum svo sjónvarpið var lágt stillt og við töluðum hátt á meðan lögin voru, svo skruppum við nokkrir út í nerf-byssuslag í góða stund :D
Góður. Ég var í afmælispartíi sem breyttist fljótlega í júróvisjonpartí, kom sem betur fer eftir íslenska lagið og náði að forða mér / halda fyrir eyrun í öll skiptin sem brot úr því var spilað aftur.
Ég nenni ekki að skrifa langt svar núna, en ég ætla bara að segja eitt: Kærasti hefur ALDREI rétt til að banna þér að hitta vini þína. Sérstaklega ef hann hefur enga raunverulega ástæðu til að treysta þér ekki.
Ég setti mér markmið í vor, þegar forkeppnin var hérna heima og þetta batterí fór í gang: Að takast að heyra ekki íslenska júgróvesen lagið. Það hefur tekist hingað til :)
Frekar langsótt samt. CoC kerfið er byggt á vinsælum bókaflokki, og þessi mynd er væntanlega vegna bókaflokksins en ekki kerfisins (finnst mér amk líklegast þó ég sé ekki 100% viss). Engin bein tenging þarna á milli. Bætt við 15. maí 2009 - 19:38 Þetta átti að vera "…væntanlega til komin vegna…".
Kannski er hann bara svona svakalega heimakær og finnst óþægilegt að sofa annars staðar en heima hjá sér? Það er það eina sem mér dettur í hug sem hefur ekki verið stungið upp á áður. Það er örugglega einhver einföld skýring á þessari hegðu. Hefurðu prófað að spyrja hann bara?
Jebb. Hann er það samt ekki lengur, hún er útskrifuð, en hann var það þegar þau… öhh, “byrjuðu saman” (fokk, mér finnst þetta orðalag ekki eiga við o_0).
Hef ekki tekið eftir neinni tískubylgju hvað þetta varðar. Ég hef sjálfur verið trúlaus frá því að ég hafði vit til þess. Var neyddur í fermingarfræðslu gegn vilja mínum en harðneitaði að láta ferma mig og hef aldrei nokkurn tímann séð eftir því.
Leviathan er snilld, er ekki búinn að ná að hlusta almennilega á Blood Mountain en hann virkar góður við fyrstu hlustun. Ég er líka að fíla nýja diskinn, Crack the Skye, í tætlur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..