Hmm, ég hlusta sjálfur frekar sjaldan á annað en metal þó bæði Muse og Guns'n'Roses séu í geisladiskamöppunni minni. Kærastan er hinsvegar nýbúin að koma mér upp á lagið með að hlusta á Smiths, sem eru bara nokkuð góðir finnst mér.
Ég veit :) Mjög feginn, mér líkar vel við hattinn minn, þó hann sé líklega fulllítill á mig núna (er með talsvert meira hár en ég var með þegar ég keypti hann).
Earth elementals í Badlands. Þarft líklega að bíða í svona 1-2 level áður en þú ræður við þau (fer líka eftir hvaða class þú ert), en þá ertu líka í góðum málum. Þau droppa helling af seljanlegu gráu drasli og eitthvað af Elemental Earth inn á milli sem má AH-a á eitthvað klink, fer eftir server hvað það fer á mikið, venjulega líklega sirka 30-60s hvert, kannski meira.
Ég held að lang flestir sem kaupa mikið af tónlist geri þetta svona. Ég myndi ekki frekar en þú kaupa mér disk með hljómsveit án þess að hafa heyrt í henni áður. Kaupi oft disk sem ég á öll lögin á inni á tölvunni fyrir, bara til að eiga diskinn.
Nei, Draenei eru ekkert stökkbreyttir. Þú ert hugsanlega að tala um Lost Ones sem eru nú þegar in game sem mobs í Swamps of Sorrow og Blasted Lands. Þeir eru vissulega stökkbreyttir en þeir eru ekki raunverulegir Draenei lengur. Það eru ó-stökkbreytt afbrigði af þeim (sem líta út eins og Eredar litu út ÁÐUR en þeir gengu til liðs við The Burning Legion) sem eru að fara að ganga í The Alliance. Afsakaðu annars hvað ég svara þér seint, var ekki í bænum um helgina.
Þú ert alveg.. EKKI að ná þessu. Kynþátturinn sem hét Eredar skiptist í 2 hluta: Hluti nr 1 hélt áfram að kallast Eredar. Það voru þeir sem fylgdu Kil'Jaeden og Archimonde, þeir urðu vondir og gengu í The Burning Legion. Hluti nr 2 kallaðist eftir það Draenei og fór í útlegð til að flýja frá The Burning Legion, það eru þeir sem eru að ganga í The Alliance, ekki hinir sem eru vondir.
http://www.wow-europe.com/en/burningcrusade/townhall/draenei.html Lestu betur það sem þarna kemur fram. Í stuttu máli: Einu sinni voru Eredar tiltölulega venjulegur kynþáttur í heiminum Argus. Sargeras sá möguleika á að nýta þá og hafði samband við þrjá leiðtoga þeirra, Archimonde, Kil'Jaeden og Velen. Þeir tveir fyrrnefndu þáðu boð Sargerasar um gífurleg völd og mátt gegn því að ganga til liðs við The Burning Legion. Velen sá einhverja maðka í mysunni, en neiddist til að flýja með þá Eredar...
Svona svipað og að af því að menn komu af öpum þá eru þeir apar? :p Sá kynþáttur sem í dag er þekktur sem Eredar eru þeir sem fylgdu Kil'Jaeden og Archimonde og gengu til liðs við The Burning Legion. Restin (lítill hluti) er Draenei, ekki Eredar lengur. Svipað og Blood Elves eru ekki High Elves lengur. Munurinn er kannski lítill, en engu að síður er þetta tvennt aðskilið. Og ég á að vera að læra fyrir stærðfræðipróf. Bæ.
[Varúð: Stafsetningarfasistinn er mættur!] “Vill” er 3.p.et.nt.fsh.gm.* mynd af sögninni “að vilja”, þar af leiðandi er engan veginn rétt að nota hana á eftir 1.p. pfn. “ég”. Rétt sagnbeyging væri, í þessu tilviki: “Ég vil.” *3. persína, eintala, nútíð, framsöguháttur, germynd.
http://www.nytimes.com/2006/05/09/technology/10warcraft.web.html?_r=1&oref=slogin Ekki Eredar, Draenei… [Varúð: Twist framundan] SEM ERU KOMNIR AF EREDAR!!! Haha! Yah. Þar með er það komið á hreint.
Það er til, en það er held ég ekki á netinu ennþá. Hinkraðu þangað til á morgun og skoðaðu þá wow-europe.com, þá ættirðu að geta fundið meiri upplýsingar :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..