1. Aldur skiptir ekki máli. 2. 7 ára reglan, þ.e. (aldur þinn / 2)+7. 20 ára strákur má s.s. hözzla allt niður í 17 ára gellu. ATH reglan hefst við 14 ára aldur. 3. Innri fegurð ? Persónuleiki etc.etc. ? Langmestu máli.
Þú ert 17 ára gömul , vittu til, strákurinn/stelpan sem þú leitar að er örugglega að leita að þér líka! Leitið og þér munuð finna, það er ólíklegt að þú fáir eitthvað sem þú leitar ekki að ;)
og var það svindl að Snorri Steinn væri í liðinnu okkar ? Markahæsti maður ólympíuleikanna! Íslenska landsliðið í handbolta á skilið hrós! Hjartanlega til hamingju með silfrið! Ég er stoltur af ykkur og stoltur af því að vera íslendingur núna!
Já, reyndar, en það er í rauninni eina leiðinn sem hann hefur til þess að komast að því hvað er í gangi. Jújú, hún verður kannski pirraðari og eypar eitthvað á hann en hann þarf að fylgja því eftir, hann á sér jú líf líka.
En náttúrlega ef hann tiplar á tánum í kringum hana alltaf hreint þá er ekki skrítið að hún “vilji” eða “nenni” ekki að ræða þetta. Ef hann myndi vera ákveðinn við hana og krefja hana um svör myndi koma annað hljóð í skrokkinn, a.m.k. lít ég á þetta þannig.
Þú kemst aldrei að neinu nema þú talir við hana, nema náttúrlega þú getir lesið hugsanir sem mér finnst ólíklegt. Sambönd byggjast á því að báðir einstaklingar geti talað saman um það sem þeim finnst vanta eða ekki vera í lagi. Sestu með henni og spjallið um sambandið, þá kemstu vonandi að því sem er að valda henni hugarangri.
Nei, síður en svo, gefðu henni bara smá tíma. Spjallaðu við hana í skólanum eftir helgi (þ.e. ef hún hefur ekki addað þér) en ekki nefna það að þú hafir addað henni. Svo bara gefa þessu tíma.
Tjarnarhringurinn er 2.4 km. Ég hljóp hann í 4 ár , í flestum tilfellum síðastur en það skipti engu máli. Skellir þér bara í sund og esjugöngu til að hækka einkunnina ;). Þú getur ekki sópað vandamálunum alltaf undir teppið og látið eins og það sé ekkert að, horfðu í augu við Tjarnahringinn og farðu út að skokka á morgnanna í korter/tuttugu mínútur og þá færðu góða þjálfun. Af forvitnissökum, kennir Bjarni eða Haukur þér?
Hæ! 1. Ef þú fylgist vel með í tímum og gerir heimavinnuna þína verður þetta ekki erfitt. 2. Það er mismunandi eftir því hvernig þú skipuleggur þig, persónulega þá lærði ég ekki mjög mikið á hverjum degi :P. 3. Það fer eftir því á hvaða deild þú ert, man ekki hvernig þetta var í 3. og 4. bekk en minnir að það hafi verið aðra hverja viku stærðfræði próf, (stafsetningarpróf í annarri hverri viku í 3. bekk). Svo í 5. og 6. bekk eru stærðfræðipróf í annarri hverri viku ef þú ert á...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..