C.a. 80% manns sem spurðir voru í rannsókn sem gerð var í Bandaríkjunum sáu eftir að hafa byrjað að reykja. Þegar ég spyr reykingafólk, sem hefur reykt í einhver ár, “sérðu eftir að hafa byrjað”, þá fæ ég yfirleitt alltaf svarið “já”. Fólk veit oftast ekkert hvað það er að fara útí fyrr en það er lent í skítnum og þarf þá að reyna að rífa sig upp, en oft er það of seint! Svo jú, þetta er stórt vandamál.