Ég sé að hjartslátturinn hefur greinilega farið upp í 130 slög hjá fleirum en mér við að lesa fyrirsögnina, og svo fær maður að frétta að þetta sé bara gabb. Ég segi það aftur, þú ert vondur. Annars er útlitið ekkert svo svart, hitinn kominn niður fyrir frostmark og Gömlu kallarnir á Dalvík búnir að lofa okkur hvítum jólum, það hlýtur bara að fara að snjóa. Þangað til verð ég bara að láta snæfellsjökulinn duga, er á leiðinni vestur um næstu helgi og vona bara að það verði gott færi. Rhamsez...