Ef eitthvað lið á það skilið að verða meistarar þá er það Fylkir. Þeir eru búnir að spila langskemmtilegasta boltann í sumar sem sést best á markatölunni - búnir að skora 8 mörkum fleira en næsta lið (ÍBV). Hins vegar hefur leikur KR-inga valdið miklum vonbrigðum og yfirleitt verið einstaklega leiðinlegur á að horfa og það yrði því sorglegt ef þeim tækist að verja meistaratitilinn (sem gerist ekki af því að þeir tapa fyrir stjörnunni). Ég er líklega einn af þeim fáu sem spáðu Fylki...