Owen, Heskey, Gerard, Murphy, Carragher, Traore, Partridge og Wright eru allir búnir að fá tækifæri, Diomede og Vignal hafa ekki spilað vegna meiðsla og Sjölund er bara 17 ára og nýkominn til félagsins. Ef Houllier hefði sömu afstöðu til Worthington Cup og Ferguson er ég nokkuð viss um að það hefðu fleiri ungir og efnilegir fengið að spreyta sig en Houllier vill vinna og því notar hann líka sína bestu leikmenn í keppninni.