Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Rain
Rain Notandi frá fornöld 154 stig

Re: Everton CM3

í Manager leikir fyrir 22 árum
Keyptirðu ekki Andra Sigporson?!? Eða er hann kannski ekki í þessum leik? Ég man þetta ekki það er svo langt síðan að ég spilaði þennan leik síðast

Re: Hver er tilgangurinn með þessu?

í Manager leikir fyrir 22 árum
Ég var að flýta mér svolítið með þetta og sumt var ekki alveg hugsað út í gegn eins og þetta með það að spurningarnar væru í sama letri og spurningar. ;) En hénna það sem ég var að reyna að segja með þessu er að mér finnst sumir korkarnir hérna bara snúast um rifrildi eða hugsunar hættinum mér gæti ekki verið meira sama um þetta. Ég vildi bara benda á að þetta gæti fengið fólk til að hætta að nenna að koma hingað. Gaddavír, sambandi við þetta sem þú sagðir um að þú værir nýbúinn að skrifa um...

Re: Böggar

í Manager leikir fyrir 22 árum
Ég hef lent í tveimur skemmtilegum böggum með þennan leik (er samt með nýjasta update-ið). Fyrsta var að markvörðurinn minn skoraði sjálfsmark (veit ekki hvernig það er hægt nema hann hafi kastað boltanum inn í markið eða einhvað). Það seinna var þegar ég var að spila og liðið sem ég var að keppa á móti var allt í einu búið að skjóta 255 sinnum á markið og af þeim hitti ekki eitt á ramman. Þetta lífgar bara upp á leikinn… ;)

Re: Tvö tímabil með Man Utd. ;D

í Manager leikir fyrir 22 árum
Þetta er alveg hryllilegur árángur. Innilega til hamingju með þetta afrek ;)

Re: Pottþétt 31 auglýsingin

í Tilveran fyrir 22 árum
Þeir eru allavega að drekka bjór í auglýsingunni! Varan sem er verið að selja sést næstum alla auglýsinguna. Ég sé hvergi geisladisk í þessarri auglýsingu hvað þá einhvað sem minnir á tónlist (nema að það er einhvað lag undir). Ég held að bjórauglýsingin hafi unnið einhver alþjóðleg auglýsingaverðlaun, enginn íslensk auglýsing hefur gert það áður.

Re: Eiður Smári Guðjohnsen

í Knattspyrna fyrir 22 árum
Hann átti framtíðina fyrir sér áður en hann meiddist. Ef hann hefði ekki meiðst þá er ég viss um að hann væri miklu, miklu betri í dag en hann er. Ég ber samt mikla virðingu fyrir honum að hafa ekki gefist upp þegar hann meiddist eftir að allir höfðu sagt honum að fótboltaferli hans væri lokið. Flestir hefðu bara farið heim og látið sér nægja að horfa á fótbolta!

Re: Pottþétt 31 auglýsingin

í Tilveran fyrir 22 árum
Ég er alveg sammála, þetta er fáránleg auglýsing. Það gæti alveg eins verið að auglýsa snjósleða!

Re: Leigja sumarbústað?

í Tilveran fyrir 22 árum
Hvar er hægt að leigja svona bústað án þess að vera í einhverju félagi???

Re: tired, tired og aftur tired

í Manager leikir fyrir 22 árum
Ertu örruglega með nýjasta patchið??

Re: 4-3-3

í Manager leikir fyrir 22 árum
Ég hef verið að nota 3-5-2 taktíkina og hún virkar drullu vel að mínu mati en kannski maður prófi þessa taktík. Er hún í taktík pakkanum sem fylgir með leiknum?

Re: núna fæ ég brjálæðingskast vegna CM4 !!!!!!

í Manager leikir fyrir 22 árum
vá, ég er rétt búinn með 2 tímabil og mér finnst ég vera búinn að spila samfleitt í tvo daga og þú ert kominn á 2007/2008 :(

Re: Meiðsli

í Manager leikir fyrir 22 árum
Ertu örugglega með update-ið? Leikmennirnir mínir voru að hrynja niður hjá mér hægri vinstri þangað til ég update-aði og þá fóru þeir að geta staðið í lappirnar.

Re: Þægilegt

í Rómantík fyrir 22 árum
Svona ímyndað samband ;)

Re: Rómantík í tímans tönn

í Rómantík fyrir 22 árum
Ég hef lesið um rómantík á 18.öld og hún var nú ekkert spes. Fólk giftist bara til að tryggja hag síns og fjölskyldu sinnar. Hjónaband var bara gert til að tryggja bönd tveggja fjölskyldna. Oftast var enginn tilfinning þarna á bakvið og hjónabönd voru líka oftast ákveðinn fyrir fram af foreldrum. Þetta með að rómantík hafi verið einhvað mikil hér á öldum árum er bara bull. Hinsvegar er þetta með Pizza 67 bara fáránlegt, prófaðu MCdonalds næst og sjáðu hvað hún segir ;) Ég held að þú ættir...

Re: Julius Aghahowa

í Manager leikir fyrir 22 árum
Hann er ekkert með sérstakar tölur hjá mér…

Re: Rekinn?

í Manager leikir fyrir 22 árum, 1 mánuði
HA? Varstu drekinn? HAHA!

Re: CM 4 MAC

í Manager leikir fyrir 22 árum, 1 mánuði
Las einhverstaðar að hann ætti að koma út í byrjun apríl, þannig að hann hlítur að vera á leiðinni ;)

Re: Vandræði í sambandi við download

í Manager leikir fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég get ekki heldur dl-að demoinu fæ alltaf error. Get reyndar ekki dl neinu af Sigames :(

Re: Mac Demoið

í Manager leikir fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Þetta er mjög fáránlegt, demoið er ekki enn þá komið á Feral síðuna. Ég er farinn að halda að þessir gaurar sé freðnir í vinnunni. En fyrst Mac demoið kom út svona bæði fyrir Mac og PC þá vona ég bara að full version leikurinn verði spilanlegur bæði á Mac og PC, það væri rosalegt ;)

Re: Demo

í Manager leikir fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Þetta eru nú allt mjög smávægilegir gallar. Ég held að þetta með back takkan sé einhvað sem maður verður að venjast…

Re: Það er komið á SiGames

í Manager leikir fyrir 22 árum, 2 mánuðum
ég get ekki einu sinni loadað helvítis síðuna

Re: Leikmenn fyrir stoke

í Manager leikir fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég mæli með að þú fáir þér Mark kerr, West (free), Teddy L, Olivera (free) og Asprilla (free), man ekki meira eins og er. Þú gætir samt þurft að borga þessum leikmönnum himinhá laun en þeir eiga eftir að skila sínu, sérstaklega Olivera.

Re: Enska?

í Manager leikir fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég hef prófað að spila með lið eins og t.d. Monza í Ítölsku og það er hryllingur. Mér tókst að koma upp ágætis liði og vera alltaf í efsta sæti í hverri deild þangað til að koma að Seriu A. En ég fékk ENGAN pening fyrir að komast upp á milli deilda og síðan fékk ég “bara” 5millur fyrir að komast í Seriu A. Þegar liðið mitt var í Seriu B þá var meira en helmingurinn af þeim lánsmenn frá liðum eins og Juve og Inter, ég get ekki sagt að það hafi verið lið sem ég var neitt sérstalega stoltur af....

Re: Man City

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég held að Seaman sé að safna þessu tagli til að geta leikið í klámmynd með Diego Forlan ;)

Re: Æfingarleikir

í Manager leikir fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Bara svona að forvitnast, notiði einhvað þessa æfingaleiki? Persónulega cancela ég þeim alltaf öllum. Græðir maður einhvað á því að spila þá? Leikmennirnir mínir eru oftast í hryllilegu formi þegar að maður er að spila þessa leiki og meiðast auðveldlega. Að auki eru ungu leikmennirnir mínir, sem ég myndi kannski nota í þessum leikjum, í svo strangri þjálfun að þeir meðast bara við það að horfa á leikinn :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok