Parma maður eins og ég? Ástæðan fyrir skyndilegu falli Parma úr toppbaráttunni á Ítalíu er sú að mjólkurfyrirtækið Parmalat átti meirihluta í félaginu. Þegar það svo fór á hausinn að mig minnir vegna hneykslismáls fylgdi Parma í kjölfarið að mestu leiti. Það er aðeins vegna þess að liðið var þá skipað úrvalsleikmönnum sem hægt var að selja fyrir háar fjárhæðir (t.d. Cannavaro, Buffon, Thuram, Crespo) sem því tókst að halda sér á floti fjárhagslega. Svo í seinni tíð eftir gullöld félagsins...