Já það er alveg ótrúlegt að vita að Balroggarnir og drekarnir voru í sama styrkleikaflokki og sjálfur Sauron! Annars hefði Sauron örugglega getað notað Smeyginn í Hringastríðinu - bara með því að lofa honum þvílíkum fjársjóðum og öðru slíku…
Svona á meðan þú ert í páskafríi;) Haha, engin pressa að sjálfsögðu - bara það skemmtilegasta sem ég geri er að lesa greinar og skrifa greinar reyndar líka…hahaXD
Ég er allavega 100% á móti því að sameina Tolkien við Ævintýraáhugamálið - var mjög hissa á sínum tíma að það hafi ekki verið gert þegar að það var gert við Star Wars áhugamálið. En það held ég hafi bara verið útaf því að Tolkien áhugamálið var svo helmingi stærra en Star Wars áhugamálið á sínum tíma. Ekkert smá margar greinar sem gerðar hafa verið á /tolkien. En annars er ég ekki sammála því að skipta þessu aftur upp. /scifi er í dái núna en svo kemur það allt aftur eins og TomasP sagði -...
Haha nú er ekki séns á að þessi leikur fari á 360 - nema þeir vilji minnka hann og gera hann sennilega verri þannig. Þetta er pottþétt leikur ársins að mínu mati. (Yeah, ég er ekki að gleyma GTA)
Má alveg nefna að í gamla textamentinu stendur að samkynhneigð sé viðurstyggð. Ég hef aldrei skilið af hverju Kristnum mönnum er sagt frá Gamla Textamentinu þar sem mér finnst það basically ekkert tengjast Kristinni trú - frekar Gyðingatrú. Í nýja textamentinu stendur hinsvegar að allir menn séu jafnir - hvernig sem þeir eru. Þessvegna finnst mér það svo asnalegt að Gamla Textamentið sé í Biblíunni hjá Kristnum.
Sammála þeim hér að ofan - hann var gerður að allt of miklum hálfvita í myndinni. Sean Benn stóð sig frábærlega sem hann - eins og hann gerir reyndar í flestöllu…
Var það ekki úr þessum hjálmi hans sem að kóróna Aragorns var gerð úr? Þá meina ég samkvæmt bókunum, haha. Minnir að ég hafi lesið þar að þeir hafi skorið neðsta partinn af og gert það að kórónu…
Mjög flott og ítarleg grein.. En enginn grein mun nokkurn tímann ná því hversu hræðilegt það hlýtur að hafa verið að vera um borð í Titanic þegar það sökk:(
Ef þú vilt fara með hana í viðgerð þá væri best að fara með hana í Skífuna held ég, en Sena á Skífuna og Sena sér um dreifingu á PSP… Bætt við 26. febrúar 2008 - 21:43 og þú tengir PSP augljóslega við PS3 með USB tengi…. Þarft bara að registera PSP tölvuna í PS3 fyrst…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..