Já wtf… en ég skil ekki hvernig þetta er fail, hann hafði frekar augljóslega planað þetta. Mundi maður ekki henda þessu frá sér ef maður hefði ekki planað að þetta mundi gerast?
Besti snjallsíminn kostar 110 þúsund samkvæmt mjög virtu tækniblaði sem tók saman lista yfir bestu raftækin. Mun bara kaupa mér hann þegar ég á nóg af peningum. Bætt við 10. nóvember 2010 - 16:32 Eða sleppa því að eignast enn eina “græjuna” og eyða frekar þessum 150.000 kalli í að fara til útlanda og fara í teygjustökk eða eitthvað álíka, hljómar miklu skemmtilegra.
Vá hvað það er lítill mismunur á bekknum og deddinu hjá þér. Sjúkar tölur en hver er skýringin á þessum mismuni? Maður mundi halda að maður sem tekur 170 kíló í bekk gæti tekið meira en 220 í dedd.
Alveg einhverjir, sérstaklega læknar. Þar sem læknar hér á landi fá að meðaltali 1.45 milljónir á mánuði en 4 milljónir í Noregi. Sá þetta á Pressunni eða einhverju álíka. Íslendingum fækkaði líka um ca. 1000 manns frá árinu 2008 til ársins 2009.
Já ég held að alheimurinn verði til að eilífu. Ég efast um að þótt að sólin þenjist út eða einhver sprenging verður sem tortímir öllu, þá mun alheimurinn alls ekki vera bara algjört tómarúm þ.e.a.s. vacuum. Bætt við 26. október 2010 - 20:30 En þegar jörðin verður orðin svo yfirfull af úrgangi og viðbjóði að manneskjan deyr út, þá verður náttúrulega enginn til þess að skynja alheiminn lengur. Enginn til þess að pæla í þessu. Nema kannski á einhverri annarri plánetu?
Aðalmarkmið er almenn vellíðan en samt ferðu 6 sinnum í viku? Treystu mér, vöðvar byggjast upp á hvíld eftir æfingu ekki þegar þú gerir æfinguna sjálfa. Max 5x í viku.
Frekar að hafa þjóðhagfræði sem skyldufag í 8-10 bekk. Það er eitthvað sem er vit í. Þó að heimspeki væri alveg töff líka, en þjóðhagfræði er bara miklu miklu mikilvægari fyrir unglingana. Peningar ættu að vera kenndir meira í skólum, sérstaklega grunnskólum.
Þetta er alltaf sama sagan með nýja tölvuleiki. Fyrst hata hann allir eins og þegar MW2 kom út og nýja CSS update-ið, síðan venst þetta og allir hafa gaman.
Góðirfélagar = Goodfellas hahaahha Glugginn á bakhlíðinni = Rear Window, meira að segja með í-i, hvaða 12 ára barn var að þessu? Geðveiki = Psycho ahahahahahaha Borg Kane = Citizen Kane, WHAT?! Fjörug ferð = Spirited Away, hvað í ands..
Skiptir engu máli hvaða braut þú ert á. Eina sem er gott að vera búinn með í menntó eru allavega STÆ503, getur tekið meira, einhverja hagfræði áfanga og bókfærslu/bókhald eða eitthvað álíka. Þótt að kjarninn þinn hafi bara 2 STÆ áfanga þá geturðu alveg tekið meiri stærðfræði í kjörsvið á hvaða braut sem er í MH(veit ekki með aðra skóla). En hafðu í huga að stærðfræðin í viðskipta- og hagfræði hér á landi er miklu meiri heldur en kennt er í útlöndum, ég hef það frá hagfræðikennaranum mínum....
Mér finnst að nálægðin sem fylgir auðvitað busuninni(frekar mikil nálægð ef það er verið að klína tómatsósu og tannkremi á þig) vera bara mjög góð leið til að láta nýja nemendur líða betur innan veggja skólans. Þó að einhverjum finnist það leiðinlegt, þá til dæmis í mínum skóla er hægt að segja við böðulinn “nei takk ég vil þetta ekki”.
Aðal ástæðan af því að sumir múslimar hata vestræna heiminn er vegna heimsvaldastefnu Bandaríkjamanna og veru hersins þeirra út um nánast allan heim. Þessir hópar setja = merki á Bandaríkjamenn og lönd í NATO. Þess vegna var gerð hryðjuverkaáras í London og Madríd fyrir einhverjum árum. Semsagt ákveðinn hópur múslima hatar okkur vegna þess að við erum í NATO.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..