Sá hana fyrir stuttu í Kaupmannahöfn eftir Hróarskeldu hátíðina. Fannst hún bara þrusu góð, enda aðdáandi Tarantino. Það er ekki ofgert hasarnum en þau hasaratriði sem eru í henni eru frábær. Kurt Russel er afgerandi frábær í nokkuð góðum hóp og frágangur myndarinnar góður, elska hvernig myndin er látin vera meiri B-mynd með því að rispa filmuna og hvaðeina. Algert brill, sérstaklega fyrir aðdáendur Tarantino.