Þessar þrjár vélar sem þú nefnir eru bara mis-nýlegar myndavélar úr sömu línu samt, þannig að nýjasta vélin (550d) er væntanlega almennt séð sú besta. Bestu kaupin eru þá líklegast í næstnýjustu eða elstu. 450d er þrusufín vél í rauninni, ekkert síðri núna en hún var þegar hún kom út. Ef þú færð kit linsuna með hristivörninni (“IS”) þá er hún bara mjög fín líka.
Þetta á einkum við ofbeldi gagnvart öðru fólki. Og ég er ekki að segja að það sé rangt að grínast með það vegna þess að grínið gæti farið fyrir brjóstið á einhverjum, heldur vegna þess að léttúðleg umfjöllun um málefnið gerir það að léttúðlegu máli. Þér þætti örugglega ekkert léttúðlegt að vera yfirbugaður og nauðgað, og ekkert sniðugt að grínast með það.
Ef maður segir þetta nógu oft í gríni hættir þetta að vera fyndið og fer að vera raunverulegur hugsunarháttur manns. Það er ekkert grín að grínast með svona, þú skilur það kannski ekki nema þú hafir lent í þessu sjálfur sem fórnarlamb eða þekkir fólk sem hefur gert það.
66° norður er í rauninni baugur umhverfis jörðina, vegna þess að það er ekki tilgrein nein staðsetning á austur/vestur skalann. Norður-heimskautabaugurinn er t.a.m. 66º 33′ 43″ norður. http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/3/31/Arctic_circle.svg (Blái hringurinn umhverfis norðurskautið)
Smá kjød&grill, smá grófmalaður svartur pipar, og síðan bara einhver grænmeti eða ost til að krydda. Rauðlauk, jalapenos, hvítlauk, papriku, briet ost, höfðingja, etc.etc. Hamborgaragerð er list.
Man ekki hvernig það er skrifað. http://images.google.is/images?um=1&hl=is&client=firefox-a&rlz=1R1GGGL_en___IS345&tbs=isch%3A1&sa=1&q=beige+color&btnG=Leita
Þannig að ef þú hefðir aldrei lært tungumál, værir t.d. daufdumbur, gætirðu ekki hugsað? Tilfinningin “gleði” er ekki orðið “gleði”. Þegar þú ert glaður ertu ekki orðið “gleði”, heldur er orðið bara það sem þú hefur lært að nota til að lýsa því, þ.e. tungumálið. Orðið “hús” er ekki hús, og þegar þú hugsar um hús ertu ekki að hugsa um orðið “hús” heldur tilfinninguna og samanlagaðar minningar af húsi. Hefur þér ekki einhverntíman liðið eins og þú getir hreinlega ekki lýst því sem þú ert að...
Það er svosem rétt hjá þér, en það eru nokkur atriði sem fá mig til að halda að bókstafs-íslamstrú sé talsvert algengari en sambærileg kristin trú. Auðvitað er það alltsaman byggt á hinum og þessum fréttaflutningi sem ég hef heyrt, og er þarmeð erfitt að slá föstu sem heilögum sannleik, en það er nokkurnvegin þetta: Stórir hópar af t.d. pakistönskum innflytjendum í skandinavíu eru hreint ekki að aðlagast betur með hverri kynslóð, heldur eru börnin og jafnvel þriðja kynslóðin að verða harðari...
Það er til fullt af stjórnarkerfum, sum gætu jafnvel talist betri, þannig að jú, við höfum alveg þróað betri stjórnarkerfi. Þeir sem hafa völdin í þessu kerfi núna eru bara þeir einu sem gætu breytt því en þeir vilja það ekki vegna þess að þeir vilja halda sínum völdum, ef við reynum að breyta því kemur bara löggan og lemur okkur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..