Get því miður ekki hjálpað þér sjálfur, en er ekki eitthvað fjölmenningarhús hérna eða eitthvað sem getur hjálpað fólki með svona? Bætt við 4. nóvember 2008 - 18:02 Ah! Alþjóðahús.
Töff :-) Finnst þessi ‘high pass’ vinnsla samt ljót, og myndin væri líklega enn betri ef ekki sæist í dyrnar þarna hægramegin heldur veggurinn væri bara samfelldur.
Hahaha. Er það?? Ég teiknaði kúrvurnar bara alltaf í sömu hlutföllum á stórt rúðustrikað blað, klippti það síðan bara út og vigtaði með nákvæmri vigt og deildi síðan með þyngd eins kassa á rúðustrikaða blaðinu til að finna út flatarmál kúrvunnar.
120 bls er nú fljótlesið. Klukkutími eða tveir. Og bókin getur varla verið svo slæm. Hlutirnir verða miklu skemmtilegri ef maður einfaldlega ákveður að sjá áhugaverðu atriðin í þeim. Mæli með því að maður geri það ef maður veit að maður þarf að gera þá.
Magnað. Svo finnst þér skrítið að allir hérna séu svolítið að tosa í lappirnar á þér, þegar þú ert með þessa frábæru avatar mynd og skrifar svona þræði?
Ef viðmælandi þinn er ekki meðvitaður eða ekki samþykkur, já. Einnig, ef maður móttekur óvart skilaboð sem eru ekki ætluð manni þá á maður að láta sendandann vita, eyða skilaboðunum og segja engum frá. :-p
Lenti í því með soul calibur 3 í ps2 að ég þurfti að velja 50 eða 60 hz þegar ég startaði honum, og ef ég valdi vitlaust þá var hann svarthvítur. Gæti það átt við?
Þegar kreppan ríður yfir er nefnilega um að gera að festa kaup á jafn solid og gagnlegum græjum og vörutorg er að selja, ég held að fólk viti það alveg. Þetta eru ekki bara einhverjir hlutir, heldur eru þetta fjárfestingar. Þegar maður fær sér þessa dýrgripi fer maður að sjá að maður lifði ekki heilu lífi án þeirra.
1812 overture eftir Tchaikovsky er svo magnað að ég myndi gráta ef ég væri ekki karlmaður. Pink floyd - Echoes Mozart - Requiem (í heild sinni) Django Reinhardt - I'se a-muggin' Emperor - With strength I burn til að nefna örfá.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..