Æj mér finnst þeir svo næs eitthvað… Hataði þá reyndar þegar ég var yngri en þetta er akkúrat dagurinn sem manni leyfist að gera ekkert merkilegt, borða góðan mat, horfa á dvd og chilla uppi í rúmi t.d.
Ég er ekkert spennt fyrir bókunum sem koma út um þessi jól. En ég keypti um daginn Rokland eftir Hallgrím Helgason og Veronika ákveður að deyja eftir Paulo Coelho og þær verða jólabækurnar mínar í ár.
Hehe mér líka :) Þegar ég var í 10.bekk var ég alltaf að pæla í þýðingunum á enskumælandi þáttunum/myndunum sem ég horfði á. Oft fannst mér hægt að gera betur, þetta var mér mikið umhugsunarefni á sínum tíma heh…:P
Ljóðskáld (er það reyndar nú þegar) Rithöfundur Tónlistarmaður Eitthvað í sambandi við ferðamál, held t.d. að það væri æðislega gaman að vera guide einhvers staðar úti Blaðamaður Ritstjóri á tímariti Bætt við 15. desember 2007 - 23:37 Ohh hélt að það væri verið að spyrja hvað við vildum vera þegar við verðum eldri. Oh well…
Tengist þetta ljóð ekki líka fyrri heimsstyrjöldinni? Sbr. Aldir og andartök hrynja með undursamlegum nið Held ég hafi lesið það einhvers staðar. En þetta er eitt fallegasta ljóð sem ég hef lesið og þegar ég gifti mig ætla ég pottþétt að fá Ragnheiði Gröndal til að syngja þetta lag :)
Ágætt… Hvað þýðir annars cove? mér finnst endirinn flottur en rímurnar í byrjuninni frekar týpískar. Ég er ekki að reyna að vera leiðinleg, bara að benda þér á þetta :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..