Vá hvað þetta er eitthvað flókið…en ég myndi bara tala við X fyrst þú ert hrifin af honum, (er það ekki annars rétt hjá mér?) og tékka á því hvað hann vill. Gangi þér vel
Hehe awww hvað þú ert góð að hrósa mér alltaf svona! Takk enn og aftur :) En já ég væri alveg til í að gefa út ljóðabók, er að pæla í að gera það í framtíðinni :D
Já ég held með Söru, Mercedes og Yoonnu, get ekki gert upp á milli! Mér finnst Mercedes algjör dúlla, hún er með svo sætt bros. Jájá þetta eru alveg ágætis þættir, fínt að horfa á þá til dæmis þegar þú hefur ekkert að gera. :)
HAAA??? Ertu virkilega of feit? Ég er 18 ára, reyndar aðeins hærri en þú en líka 50 kg, og ég er bara venjulega vaxin, alls ekki feit. Er þetta ekki bara eitthvað bull hjá þér? Eða er þetta einhver vitleysa í mér…? :S
Ohh ég skil þig svo vel! Ég hef oft verið notuð af strákum og þess vegna er ég alltaf geðveikt viss um að allt eigi eftir að fara út um þúfur þegar ég hitti strák… Nei þú ert ekki skrýtin, alls ekki. Bara ekki hafa áhyggjur af þessu, ég sé geðveikt mikið eftir því. Ef þú ert viss um að eitthvað mistakist, þá er mjög líklegt að það gerist. Mundu það :)
Ég var aldrei að dúlla mér með þeim báðum í einu, ég var bara á báðum áttum þegar ég komst að því að hinn strákurinn var eitthvað að spá í mér…Ég talaði svo við fyrri gaurinn sem ég var að dúlla mér með og hann gaf í skyn að ég vildi ekki meira… Just drop it please!!! Ég er búin að segja að þetta hafi bara verið bull í mér og ég hafi bara verið pirruð þegar ég skrifaði þetta
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..