Ég þekki nákvæmlega hvað þú ert að tala um. Í vinnunni minni er mjööög mikið af fólki sem ég á alls enga samleið með, sem er jú ekkert vandamál fyrir mig, elska fjölbreytileikann í samfélaginu. En að geta haft samskipti við einhvern vegna vinnu er gerólíkt að vilja eyða pásum og frítíma með sömu manneskju. Það eru svo margir sem koma til mín með sögur af sér sem að ég bara get ekki tengt við, skilið, glaðist yfir, sýnt samúð með og hef engan áhuga á, en þó maður segi viðkomandi að maður hafi...