Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

MonteCristo
MonteCristo Notandi síðan fyrir 21 árum, 4 mánuðum Karlmaður
108 stig
Don't argue with idiots. They drag you down to their level and beat you by experience.

Re: Næsti CRPG leikur

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Hefuru prófað Morrowind, hann er mjög góður!

Re: Baldur's Gate áhugamálið.

í Hugi fyrir 20 árum, 8 mánuðum
fullkomlega sammála, það ætti líka að setja Elder scrolls kork á það.

Re: Mithrandir - Smá forsaga.

í Tolkien fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Að mig minnir var það aðeins hringurinn eini sem ekki einu sinni drekaeldur gat eytt, en dvergahringarnir voru ekki það öflugir. Ég held að drekar hafi eyðilagt þá þegar þeir réðust á dvergabyggðir í leit að gulli.

Re: Elder scrolls áhugmál

í Hugi fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég myndi alveg samþykkja það, enda mjög hrifinn af Morrowind, en það væri fínt ef Baldurs gate áhugamálinu yrði breytt í RPG leikja áhugamál og þar yrði settur korkur fyrir elder scrolls.

Re: Mithrandir - Smá forsaga.

í Tolkien fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég held að það hafi verið þannig með dvergahringana að Sauron hafi náð þremur en hinum fjórum hafi drekar eytt. Svo hringurinn sem Elrond átti var víst fyrst í eigu Gil-glataðs(kannski ekki rétt skrifað) en svo í bardaganum við Sauron hafi hann látið Elrond fá hringinn áður en hann dó. Mig minnir að þetta hafi verið svona, annars sá ég ekkert að þessu,flott grein.

Re: Varðandi Könnun ... :E

í Half-Life fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Það sem stendur þarna er bara kjaftæði og er nú bara gert sem smá grín, rólegur þetta er ekki svona alvarlegt.

Re: Með lífið í lúkunum

í Smásögur fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þetta er ömurleg, ÖMURLEG smásaga!!!!!!!!!!!!!! Nei, nei ég er bara að grínast aðeins í þér Gunni minn. Þetta er svo sem ágætis saga, held ég. But what do I know?

Re: Hlutir sem ég þoli ekki.

í Sorp fyrir 20 árum, 10 mánuðum
já eiginlega alveg sammála en svo HATA ég allt þetta idol kjaftæði

Re: Gráa skýið!!

í Deiglan fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Vá 70km á klst, og detta kannski svona dropar úr skýinu “þegar” það ræðst á Kúbu og Færeyjar? Eða ertu kannski sölumaður sem er að reyna að fá okkur til að kaupa dósamat?

Re: Beans sem hann-sem-ekki-má-nefna

í Harry Potter fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég var einmitt að lesa þetta áðan. Mér finnst þetta soldið undarleg ákvörðun, ef þetta er satt. Annars held ég að það verði soldið skondið að sjá Rowan Atkinsson sem Voldemort.

Re: Hvað er heimurinn? Og hvernig varð hann til?

í Heimspeki fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Það sem ég spái mest í er hvernig allt efnið, sem jörðin, sólin, reikistjörnurnar o.s.frv., varð til. Einhver sagði að það hefði allt orðið til við “big bang”, en hvað varð til þess að þessi “big bang” varð?

Re: hvad er ad honum?

í Fiskar fyrir 21 árum
Það gæti verið að hann sé eitthvað veikur, þú getur örugglega spurt um þetta í gæludýrabúð, en svo gæti líka verið að hann sé bara að deyja. Það var einu sinni fiskur hjá mér(reyndar ekki gullfiskur) sem var að deyja, hann var orðinn mjög feitur og barðist við að halda sér á floti. En ég er ekki viss hvað þetta er svo ég myndi spurja í gæludýrabúð.

Re: Einu sinni var...

í Sorp fyrir 21 árum
jahá það er aldeilis, en var það Grýla sem gerðist stórreykingamaður á Havana vindlum og stofnaði gaybar með Fidel Castro?

Re: Tilgáta um líf á Mars

í Geimvísindi fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég held að sólin hafi orðið til á sama tíma og jörðin eða fyrir um 4,6 milljörðum ára en ekki 6 milljörðum ára. Og ég held að sólin komi frekar til með að stækka með tímanum, heldur en að hún hafi verið stærri áður. Svo er andrómeda ekki sólkerfi heldur stjörnuþoka(sem er í um 2,3 milljóna ljósára fjarlægt). En næsta sólkerfi er held ég Alfa í Mannfálkanum(eða eitthvað þannig) sem er í 4,3 ljósára fjarlægð en ég veit ekki hvort hún er stærri en sólin. Svo er það þannig að ef stjörnur hafa...

Re: Pétur/Englar Alheimsins

í Bækur fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég er að lesa hana í skólanum og mér finnst hún ekkert sérstök, t.d. er alltaf verið að flakka milli tíma, stundum er verið að tala um hann sem ungling og svo allt í einu er verið að tala um hann á kleppi, svo finnst mér hún ekki fyndin og heldur ekki spennandi. Þessi bók er svosem ágæt því hún fær mann til að hugsa, en ég er allavegana meira fyrir skemmtilegar bækur.

Re: Tilgáta um líf á Mars

í Geimvísindi fyrir 21 árum, 1 mánuði
Sko Sólin þenst út og stækkar þegar hún er að verða uppiskroppa með eldsneyti, þ.e.a.s. vetni, þá verður hún að rauðum risa en þar sem massi sólar er ekki mikill(miðað við aðrar stjörnur) þá skreppur hún að lokum saman og verður að hvítum dverg.

Re: Líf á öðrum hnöttum?

í Geimvísindi fyrir 21 árum, 1 mánuði
Sko ef þú ætlaðir að sjá aftur á Rómarveldi þyrftiru að vera aðeins lengra í burtu en á Júpíter, þú þyrftir að vera í um 2000 ljósára fjarðlægð frá Jörðinni og það er fjandi langt. Jafnvel harðgerðustu bakteríur á jörðinni þola ekki 400°C(að ég held) og hvað þá fjölfruma verur sem eru ekki næstum því eins harðgerðar. Sjálfur held ég að það sé nokkuð öruggt að það leynast einhverstaðar vitsumunaverur í þessum stóra heimi. Það eru milljarðar milljarða stjörnuþokna þar, það getur ekki annað verið Skúli

Re: Kettir

í Kettir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Þetta eru farnar að vera soldið margar greinar sem þú sendir inn, og já, mér er farið að leiðast þær soldið. Þú ættir kannski að gera þær soldið áhugaverðari, en það er bara það sem mér finnst.

Re: ritgerð eftir mig-mjög áhugaverð :Þ

í Skóli fyrir 21 árum, 1 mánuði
Í hvaða skóla ertu/varstu?

Re: Lifum við í forriti?

í Heimspeki fyrir 21 árum, 1 mánuði
Venus “var” næst því að vera jörðin, nú eru svo mikil gróðurhúsaáhrif þar að það er 400°C hiti þar og svo er Venus umlukin skýjum og úr þeim kemur ekki venjulegt vatn heldur brennisteinssýra. Svo tekur það hana svona hálft ár að snúast um möttul sinn, sem tekur jörðina einn sólarhring.

Re: Dr. Leroy og Ms. McEskinson

í Sorp fyrir 21 árum, 1 mánuði
of mörg nöfn

Re: Baráttan um keppnina miklu 3.

í Sorp fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hehe fyrirgefðu ef ég móðgaði þig eitthvað, mér fannst bara soldið fyndið að hann hafi settst í fangið á honum. En ég held að þú þurfir ennþá meiri tíma en ég ef þú ætlar að halda áfram að semja þetta kjaftæði

Re: Baráttan um keppnina miklu 3.

í Sorp fyrir 21 árum, 1 mánuði
Það er aldeilis hvað hausinn á þér er fullur af kjaftæði, það getur svo sem verið allt í lagi að lesa það. Ein spurning: “Ned settist í fang hans og spurði hann hvað honum byrgðist í brún.” Settist hann í fangið á honum? P.s. svo eru það nokkur óp en ekki æp

Re: Lifum við í forriti?

í Heimspeki fyrir 21 árum, 1 mánuði
mér finnst kökur góða

Re: Heimilið mitt

í Heimilið fyrir 21 árum, 1 mánuði
Það mætti segja að þú værir soldið virkur notandi.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok