Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hvaða tungumál?

í Tungumál fyrir 18 árum
Íslenska enska danska ^nokkuð reiprennandi (þó ég hafi ekki notað dönskuna í langan tíma, eflaust orðin ryðguð) ítalska - get bjargað mér þýska - get bjargað mér franska - hef lært, en man ekki mikið spænska - sama og með frönsku ;) Svo getur maður náttúrulega bjargað sér á norðurlandamálunum, og ég skil hollensku ágætlega.

Re: Algengar spurningar og svör um húðflúr

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Jú, ég er að meina svona :) Var bara ekki búin að taka eftir því!

Re: Algengar spurningar og svör um húðflúr

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Flott grein :) Þú gætir kannski sett þetta í kubb eða eitthvað þess háttar, þannig að þetta sé á forsíðunni á /hudflur :)

Re: Göt og atvinnulíf

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Já það er spurning… Held samt að ég bíði bara þangað til ég hætti um jólin, svo þegar ég byrja aftur í sumar get ég bara tekið hann úr mér á daginn :)

Re: pæling

í Hjól fyrir 18 árum
Er nokkuð svo heitt í Mílano á veturnar? Ég var þar rétt fyrir austan síðastliðin jól, það var nú helvíti kalt. Munaði stundum 14°c á hitanum þar og hér, og þá kaldara þar ;)

Re: Hversu mörg göt?

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Úff snilld!

Re: Hversu mörg?

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Ég ætlaði ekki að fá mér hjarta, var að pæla í einhverju öðru en á svipuðum stað. Svo ég fékk mér eitthvað þar til að sjá hvernig það sé að hafa á þeim stað :p og hjartað var skársti kosturinn af því sem ég sá þarna, svo ég valdi það. Og líkaði bara helvíti vel við það :) Er samt ennþá með hvítt far þar sem hennað var (rétt fyrir ofan tattooið), ég fékk það úti á spáni og varð svo sólbrún :p

Re: Hversu mörg?

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Ég byrjaði með henna hjarta, lét síðan gera svipað alvöru á sama stað :)

Re: Göt og atvinnulíf

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Ég get nú ekki svarað fyrir aðra, en ég reyni nú að halda götunum mínum sem snyrtilegustum :p ekkert svakalega girnilegt að fá sýkingu!! Gefur það þá ekki í skyn að gatað fólk sé snyrtilegra en aðrir? :D

Re: Göt og atvinnulíf

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
haha einmitt :D

Re: Nightmare Before Christmas

í Músík almennt fyrir 18 árum
Ég rakst á eitthvað á radioblogclu

Re: Fyrsti Kossinn

í Rómantík fyrir 18 árum
Æji mér er svosem sama… ég vissi nokkurnveginn af þessu, kom mér ekkert á óvart

Re: Hversu mörg göt?

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Kemuru fjórum á einn snepil? :o vá! Ég kem bara 2 :( Væri til í þrjú!

Re: Skíði

í Vetraríþróttir fyrir 18 árum
Hmm já góður punktur :)

Re: Göt og atvinnulíf

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Einmitt :) Ég er samt spenntari fyrir augabrúninni heldur en vörinni núna :)

Re: Skíði

í Vetraríþróttir fyrir 18 árum
Ég veit ekki með skíðin sjálf, en ef þú kaupir fyrir meira en 18.000kr þá held ég að þú þurfir að borga toll.. Þannig að mundu að hafa það í huga :)

Re: Hversu mörg?

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Ægishjálmur er flottur :) Kærastinn minn er með vegvísi á upphandleggnum, vegvísirinn er mjög svipaður og ægishjálmurinn. En er tattooverað í lófa? Ég heyrði einhverstaðar að það væri ekki gert..

Re: Göt og atvinnulíf

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Ég ætlaði að fá mér gat í vörina, í miðjuna, en ég spilaði á klarinett (spila smá ennþá, en ekki 10 æfingar í viku eins og þá :p) og gat þess vegna ekki fengið mér. En þessi vinna er bara svo vel borguð, að ég vil ekki gera eitthvað sem gæti eyðilagt fyrir mér :S ég yrði ekkert rekin, en ég yrði ekkert vinsælli heldur =/

Re: Göt og atvinnulíf

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Það er þá spurning hvort ég láti gera það þegar ég hætti að vinna eftir áramót, og þá get ég tekið það úr á daginn þegar ég er að vinna í sumar.. :D Úff nú er ég spennt :p

Re: Hversu mörg göt?

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Ég er með tvö í hægri snepli, eitt í vinstra snepli og eitt í brjóskinu vinstra megin. Mig langar í gat í augabrúnina, og þegar ég grennist (ég segi þegar :p en spurning hvenar þegar sé!) langar mig í gat í naflann. Væri líka til í þrefaldan spiral..

Re: Nokkur göt í augabrún

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Vinn hjá ríkinu, vil helst ekki segja nánar frá því :) margir sem gætu þekkt mig, ekki margir á mínum aldri sem vinna þar..

Re: Hljómsveita tattoo

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Nei ég myndi ekki fá mér hljómsveita tattoo.. En ég meina, fólk ræður hvað það gerir við sinn líkama :) Ef einhver telur sig elska Iron Maiden það mikið að viðkomandi verði að skella nafninu þeirra á rassinn, þá er það bara hans/hennar mál :)

Re: Verið velkomin, á nýtt áhugamál!

í Vetraríþróttir fyrir 18 árum
W00t!! Flott mál :D

Re: Nokkur göt í augabrún

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Ég er persónulega ekkert voðalega hrifin af því að hafa fleiri en einn hring á augabrún.. En af hverju ertu að hugsa um hvað öðrum finnst? Ef þú vilt þetta, þá er það málið ;) Annars veit ég ekki með það að setja hringi, ég er ekki með gat þarna. Get það ekki útaf vinnunni minni :( :(

Re: Hversu mörg?

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum
Ég er sjálf með eitt, en er að hugsa um annað. Ég veit ekki alveg hvað, en er með nokkrar hugmyndir í kollinum :) Ég er með lítið hjarta á brjóstinu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok