Þegar systir mín var svona 4 ára, ég var 12.. Þá vorum við eitthvað í sama herbergi að leika, hún með eitthvað dót og ég í tölvunni.. Allt í einu fer hún að hágrenja, uppúr þurru, og mamma kemur og athugar hvað sé að. Þá segir systir mín að ég hafi lamið hana :| Þó ég hafi bara setið þarna í tölvunni og ekki komið nálægt henni. Auðvitað lenti ég í vandræðum og var húðskömmuð..