Ef ég skil þetta rétt, og þetta er einelti sem þú ert að lýsa, þá vil ég bara segja þér hvað bjargaði mér alveg :) Ég var í skóla sem var fyrir nemendur í 1-7. bekk. Allann tímann var ég lögð í einelti, og hef meðal annars þurft að fara á slysó til að gera að sárum eftir að ég var kýld í miðjum tíma. Þrátt fyrir það og ótal kvartanir frá foreldrum mínum (þau töluðu við kennarana, skólastjórann og foreldrana, en það var aldrei hlustað), þá var ekkert gert. Þannig að ég fór í annan skóla í...