Ég held að þetta sé allt að stóru leyti ýkt. Ég var nú samt reyndar að lesa grein um daginn um blokkir í Reykjavík (Fyrirsögnin var Blokkir jafnaðar við jörðu og svo var mynd af blokkinni minni, þannig að ég varð eiginlega að lesa :p ), og þar var Fellahverfinu líkt við gettó. Ég var nú svoldið hneiksluð á því, þó ég þekki ekkert til þar, en ég ræddi það við pabba sem var í Fellaskóla fyrir milljón árum. Hann sagði að þá væri það allt svoldið gettólegt, og væri eflaust verra núna. En ég sel...