Það er alveg hellings munur á 10D og 5D, 5D er full frame vél meðan xxD og xxxD vélarnar eru með svokallaðann 1.6 crop sensor, en munurinn á þessu tvennu er efni í heila grein svo ég fer ekki nánar út í það, ef þú ert að leita að byrjenda pakka skaltu ekki vera pæla í 5D nema þú eigir nægan pening, ég var sjálfur að uppfæra úr 400D yfir í 5D og borgaði 170þ fyrir fimmuna en seldi 400D á 60þ með 2x linsum, batterygrip ofl aukahlutum, sú vél reyndist mér mjög vel og mæli eindregið með þeim...