Nei kallinn er gamall og ég vil ekki eiga þátt í því að leggja andlegt álag á kallinn. Ekki myndi ég vilja að fólk myndi hittast bara til að mótmæla moi.
Jámm þetta er voða oft svona að foreldrar vilja ekki vera með eitthvað vesen út í búð og gefast bara strax upp en! Ég veit um bræður sem hafa báðir fengið svona ekkert of strangt uppeldi en samt þá hafa þeir aldrei komist upp með eitthvað kjaftæði og annar þeirra hikar ekki við að taka frekjuköst hvar sem er á meðan að hinn situr venjulega útí horni og les. Sumir börn eru bara nátturulega frek. Ekki af því að þau vita að þau komist upp með hluti.
13ára krakkarnir eru búnir að taka alla.. Góðu vinnuna. Ég sótti um alls staðar og síðan var bara búið að ráða einhverja 13ára í þetta allt vegna þess að það þarf ekki að borga þeim eins mikið og 15ára.. Pff
Ég er farin að íhuga að skipta yfir í MH um áramótin þar sem vinir mínir verða þar. Þannig að ef svo vill til að kvennó sé ömurlegur staður og vinir mínir skipta ekki um skoðun þegar kemur að mikilfengleika MH þá mun ég vera stoltur MHingur janúar 2007. But then again þá efast ég um að kvennó sucki svo..
Hvernig veistu að þær eru ekki með háa greindarvísitölu? Þótt að þær sýni það ekki þá er ég viss um að þær séu allar með yfir meðaltal greindarvísitölu og síðan sýna rannsóknir að þú getir hækkað greindarvísitölu þína ef þú leggur á þig nógu mikla vinnu. Ég þekki t.d fulllt af svona “beauty” stelpum sem voru með 10 í öllu alveg þangað til í svona 8-9 bekk og flestir af þeim féllu á allavega einu samræmdu prófi. Það er bara ekki kúl að vera gáfaður.
Þeir hafa bara einfaldlega ekki áhuga á því held ég.. alveg eins og þessar stelpur gætu verið uber gáfaðir en þær eru bara of busy í næstu verslunarmiðstöð að versla og pikka up stráka
Og ég geri ráð fyrir því að þú hafir gert fólkinu á skjá einum grein fyrir þessum vonbrigðum þínum eða ætlastu bara til þess að þau lesi hugsanir þínir?(fyrirgefðu ef að þetta hljómar bitchy ég bara gat ekki orðað þetta öðruvísi)
Hehe mér finnst eins og allir séu að fara með vinum sínum í Kvennó, þannig að ég fæ svona á tilfinningunni að það eigi eftir að vera erfitt að eignast nýja vini.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..