Ég stal einu sinni plast indíjána frá frænda mínum en mér til varnar þá var ég 7 og hann svona 15 og hann löngu hættur að leika sér með dót. … Ég var það slæmur þjófur að stuldur minn fattaðist er ég labbaði út úr húsi hjá frænda mínum, konu hans og umræddum frænda… Að mig minnir vegna þess að ég montaði mig að því að hafa tekist að stela indíjánanum. Ég var undir sterkum áhrifum af myndinni þar sem leikfanga indíjáninn vaknar til lífs.