Takk takk… En það munar alveg um á milli t.d. 18ára og 22ára! Svo eru þeir oft búnir með nám (reyndar ekki minn…) þannig að það verður ekki eins mikið vesen.
Ef að þú hefðir komið inn í kvennaklefann og séð sumar af þessum kellingum án sundfata. Maður einbeitir sér af því að horfa út í loftið til þess að sjá sumt aldrei aftur… Vertu feginn að sumar fara í sundföt…
Ég sá gamla mynd af mömmu minni um daginn, á myndinni var hún svipað gömul og ég er núna… Ótrúlega skrítið, hún er nefnilega búin að breytast svo mikið síðan þá, en þegar hún var ung (á þessari mynd amk.) þá er ég geðveikt lík henni :P
Öh, ég hef eiginlega ekki hugmynd. Vinn hjá pósthúsinu við að bera út fréttablaðið á milli 6 og 7 á morgnanna, og hef ekki hugmynd um launin mín, gellan í símanum sagði eitthvað í kringum 20þús en ég er ekki viss. Síðast þegar ég vann hjá þessu fyrirtæki var mér sagt að ég fengi sirka 20þús en fékk aldrei nema 12-13þús. Well, og svo er ég liðveisla, er með 890 rsum á tímann þar.
Egg, fiskur, allt loðið (hross, kanínur, kettir, hundar and so on…), myglusveppur, túnfífill, grasfrjókorn, skelfiskur. Ekkert fleira sem að ég man eftir í augnablikinu, eða jú, eitthvað lyf sem að ég man ekki hvað heitir…
Oh, well. Minn er alveg ágætur ^^ kemur mér stundum á óvart bara… En virkilega að þú þurfir að sjá ein um að krydda kynlífið? Ertu ekki að grínast? Þetta er eitthvað sem að hann á að taka þátt í…
Ég lenti í því úti á Spáni að ég var á netkaffi (btw. að tala við kærastann minn) og kemur þá ekki þessi spánverji, kannski aðeins yngri en ég, bankar á gluggann og kemur með bendingar um að honum langi í koss…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..