Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Karat
Karat Notandi frá fornöld 4.538 stig

Re: Spurning í samræmdu. ísl.

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Rétt hjá Zombrero, þetta er klofning, sbr. i verður jö. kilir>kjölur. Algengari klofning er þó þegar e verður ja eða jö. Karat.

Re: Hringurinn

í Sápur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Nei. En Lyn verður brjáluð þegar hún fréttir að Susan hafi sofið hjá honum því að hann er prestur.

Re: Hver munurinn á drama og sápu?

í Spenna / Drama fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ég tel One Tree Hill og O.C. ekki sem sápur. Þessir þættir voru þó komnir inn á sápuáhugamálið áður en ég varð stjórnandi þar og ekki veit ég hvernig stendur á því. Þar sem þeir eru komnir þangað ætla ég ekki að handa þeim út. En álíka þættir verða ekki teknir inn á sápuáhugamálið. Þar sem ekki er um sápur að ræða. Þessi umræða hefur þegar komið upp á sápuáhugamálinu. Kv. Karat, stjórnandinn á Sápum.

Re: Miði á boðsýningu

í Sci-Fi fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ég á þetta safn, keypti í BT, örugglega fyrir jól. Það fylgdi allavega enginn boðsmiði þar.

Re: Ertu ekki að f*kking grínast??

í Tilveran fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ömurlegt. Þetta hefði átt að gerast næsta föstudag (13.)

Re: Ætti ég að skipta um skóla??

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Það er reyndar alveg rétt hjá þér. Það er oft mjög óþægilegt að skipta um skóla upp á það að gera að það eru aðrar bækur eða þær sömu í öðrum árgöngum og síðan getur maður hafa misst af einhverju. Segjum bara að þú lærir ekki fornöfn í 7. bekk af því að það á að kenna þau í 8. bekk. Síðan skiptir þú um skóla og í honum er kannski búið að kenna fornöfn og þá missir þú af þeim og þarf að gera allt upp á eigin spýtur. S.s. já góð ábending hjá þér.

Re: Ætti ég að skipta um skóla??

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta eru víst nýjar reglur. Í ár er þetta svona í fyrsta skipti. S.s. þeir sem eru í 9. bekk núna og eru að taka samræmd próf mega taka þau aftur á næsta ári ef þau vilja. Seinna prófið gildir svo (þ.e. einkunnin).

Re: Ætti ég að skipta um skóla??

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Mig langar bara að spyrja. Hvernig stendur á því að þínar bestu vinkonur eru í öðrum skóla? Varstu einu sinni með þeim í skóla eða hittist þetta bara þannig á að þín gata á að fara í annan skóla en þeirra götur eða eitthvað svoleiðis? Mér finnst að ef þér myndi líða betur með vinkonum þínum þá ættirðu bara að láta vaða og láta færa þig ef þú færð leyfi til þess. Það eru örugglega góðir kennarar í hinum skólanum líka. Allir mega núna taka samræmd próf í 9. bekk og taka þau svo aftur í 10....

Re: Dee-Madeleine

í Sápur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hún lék Dee; Dione Bliss.

Re: Skrópa í dönsku samræmda?

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ert þú að tala við mig? Ég nenni nú ekki að fara niður á þitt plan og svara þessu, ég er yfir það hafin. Hins vegar skaltu passa þig á að tala aldrei niður til mín aftur, því mun ekki verða teki eins létt. Karast, stjórnandi á Skóla.

Re: Skrópa í dönsku samræmda?

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hann er að tala um að skrópa í prófinu.

Re: Skrópa í dönsku samræmda?

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Það borgar sig sko ekki að skrópa í prófinu fyrst þú ert skráður í það. Þá færðu 0 á einkunnaspjaldið.

Re: Ensku próf - svörin mín

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ekkert próf á morgun (miðvikudag). Stærðfræðiprófið er á fimmtudaginn.

Re: Spurning 59

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hef það frá kennara sem kennir 10. bekk og er hægt að treysta alveg (hins vegar skilst mér að þetta hafi ekki verið kennt í 10. bekk). Það ætti að fella þessa spurningu niður að mínu mati.

Re: EastEnders

í Sápur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ég bara var að fá BBC Prime rétt áðan, ég kannski kíki á þetta. Hvenær eru þessir þættir?

Re: Joe?

í Sápur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þessar samræður eru orðnar ansi spoiler tengdar þannig að það fer að verða best að stoppa. Það hefur enginn gefið upp að Joe muni EKKI koma aftur svo að við gerum bara ráð fyrir því að hann eigi eftir að birtast aftur.

Re: Spurning 59

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Rétta svarið er umskipun.

Re: Áhugaspunar

í Sápur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Mér finnst þetta alls ekki góð hugmynd og svona skrif eiginlega ekki heima hér.

Re: Eurovison þáttur á RÚV-Thomas Lundin

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hún/hann sendi þennan kork upphaflega inn sem grein. En þessi texti er of stuttur til að vera grein. Mynd var send inn með “greininni” en það sjást auðvitað ekki myndir á korkum.

Re: Spurning 59

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Í setningunni sem á að finna stílbragðið í (gefið upp hér að ofan) er ekki að vinna neinn úrdrátt. Úr hverju finnst þér verið að draga? Ég bara spyr.

Re: Izzy og Karl

í Sápur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ég tók nú ekki eftir neinu.

Re: Spurning 59

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Það er eitthvað bogið við þetta nefnilega.

Re: Sjá samræmd próf í 10.bekk

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Samræmdu prófin koma ekki í skólana….

Re: Spurning 59

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Tja, ekki að ég ætli að vera að setja mig á háan hest, en ég er reyndar töluvert mikið menntuð í íslensku og ég veit þess vegna að svarið við þessari spurningu er ekki úrdráttur. Úrdráttur er í stuttu máli það að maður er að draga úr einhverju. T.d. ef maður vinnur til verðlauna og talar svo um það eins og það sé ekkert merkilegt. Þá er maður að draga úr. Þetta er bara einfalt dæmi…

Re: Spurning 59

í Skóli fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Það er eiginlega alveg sama hvað þú segir. Þetta er ekki úrdráttur. Ekki þessi texti.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok