Smárabíó, Kringlubíó, Sambíóin Mjódd, í þessari röð. Ég er ekki hrifin af hinum bíóunum. Mér finnst Háskólabíó verst, þar eru vond sæti og ekki staður fyrir glas í stóra salnum (síðast þegar ég vissi).
Í áfangakerfi þarftu meira að sjá um þig sjálf/ur. Ef þú ert sjálfstæður og gengur vel að skipuleggja þig og sjá um eigið nám er áfangakerfi eitthvað fyrir þig. Ef þér finnst gott að hafa mikið aðhald og að þurfa ekki að spá sjálf/ur í hvaða fög þú átt að taka þá og þá önnina þá ættir þú að fara í bekkjarkerfi. Í bekkjarkerfi er oftast meiri samheldni og þú kynnist fljótt krökkum í bekknum og þið haldið saman. Í áfangakerfi ertu kannski bara í einu fagi með hverjum nemanda. Ef þú ert ekki...
Hvað meinarðu? Þú færð prófið ekkert sent (ég geri ráð fyrir að þú hafir verið að klára 10. bekk og sért að velta því fyrir þér hvort þú fáir að sjá prófúrlausnirnar þínar). Þú færð ekkert að sjá það nema að þú óskir sérstaklega eftir því, sennilega við Námsmatsstofnun.
Þá erum við sammála um það að þetta er nákvæmlega sama myndin. Fyrir utan að augljóslega er búið að minnka hana og klína á hana texta á þessu eintaki, sem gerir það auðvitað slakara.
Þú meinar “þegar” hann deyr, allir deyja eins og þú veist. Vonum bara að hann nái að gera þessar seríur fyrst. Annars er örugglega einhver af hans samstarfsmönnum sem gæti haldið því áfram eftir hans dag, varla er hann einn í þessu. Spurning hvernig gæðin yrðu samt.
Nákvæmlega, alveg sammála. Miðað við að Libby er uppáhalds persónan finnst mér höfundur þessarar greinar vita alveg óskaplega lítið um hana og hennar hagi. Fyrir utan auðvitað að það hefði verið hægt að skrifa svo MIKLU meira um hana (en, höfundurinn vissi kannski ekkert meira). Karat
Ég er sammála Gullab, ég er alls ekki viss um að þú komist inn í þessa skóla með þessar einkunnir. Allavega ekki MH. Ég veit svo sem ekki neitt en ég hef heyrt að kröfur skólanna séu mun meiri í ár en í fyrra, þetta er mjög stór árgangur. Ég vona að ég sé samt ekki að draga úr þér…
Tékkaðu bara á því sjálfur http://www.hugi.is/brandarar/images.php?page=view&contentId=2075835 Þetta er sama myndin. En ekki að ég sé að taka þetta neitt nærri mér, stjórnandinn hefði bara mátt passa sig á þessu ;)
Ég veit ekki til þess að þetta sé tölvuleikur. Ég fann þetta á síðu fyrir löngu, ég man ekki einu sinni lengur hverri. Mér finnst hún ekkert óskýr, kannski svolítið hreyfð, hann er náttúrulega að fara að kasta steininum.
Já, alltaf gaman að sjá grein hér. Ég er einmitt að fara að skella mér í að lesa Unfinished Tales núna í sumarfríinu :D Eins og Steinikr benti á hefði verið gaman að fá eitthvað smávegis frá þér sjálfum líka. Álit og svoleiðis. Karat
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..