Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Karat
Karat Notandi frá fornöld 4.538 stig

Re: Eg veit ekkert og vil fa eitt svar :p

í Tolkien fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég mæli með því að þú horfir á myndirnar áður en þú lest bækurnar. Þá verðurðu pottþétt ekki fyrir vonbrigðum með myndirnar, þó þær séu alveg stórfenglegar vantar nefnilega ýmislegt í þær. Þegar þú ert búin að sjá myndirnar þyrstir þig í að vita meira og þá áttu eftir að lesa mikið í bókunum sem ekki er í myndunum. Svona gerði ég þetta, þó það væri fyrir tilviljun að ég sæi myndirnar fyrst, en ég varð ekki fyrir vonbrigðum með neitt af þessu :D Kv. Karat.

Re: LOTR vs. SW

í Tolkien fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Á að vera tvímælalaust býst ég við. Ferlega er leiðinlegt þegar fólk lætur svona vitleysu frá sér!! Mér finnst Star Wars alveg skemmtilegt, en LOTR/Tolkien finnst mér miklu miklu skemmtilegra, þess vegna svaraði ég þessari könnun t.d. Tolkien í vil, ætli að það sé ekki mikið sama fólkið sem hefur áhuga á svona ævintýrum.

Re: Hversu mikið veist þú um Myndlist?

í Myndlist fyrir 20 árum, 6 mánuðum
1. Vinsent Van Gogh 2. Edvard Munch 10. Impressionisma 13. Louvre - Mona Lisa 16. Leonardo da Vinci 19. Davíð (?) 20. Buonarroti Ég veit ekki fleiri, vil ekki vera að svindla með því að kíkja í bók.

Re: erfiðar spurningar

í Tolkien fyrir 20 árum, 6 mánuðum
1. Barad dur 2. Gamdingill eða eitthvað svoleiðis. 3. Andúríl, Aragorn átti það. 4. Moría? 5. Elendill var faðir Isildurs, hann var konungur Gondors. 6. Kona Tuma hét Gullbrá og stjórnaði vatni/ám. 7. Galdalfur réð yfir hinum ævarandi eldi. 8. Nornakóngurinn frá Angmar var foringi Nazgúlanna, Jóvin drap hann. 9. Fróði var Þriðason. 10. Djagall var vinur/frændi Smjagals. Hann fann hringinn á árbotni og Smjagall drap hann til að ná hringnum. 11. Skv. bókinni var það álfurinn Glorfindil eða...

Re: Logo keppnin

í Tolkien fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Vertu ekki svo viss, ég tel mig geta hvíslað þessu að honum hehe.

Re: Skyldleiki.

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Hahaha, ferðu yfir textann þinn í Word til að skilja það sem þú sjálfur skrifar. Hahaha, eitt er að skilja ekki það sem maður handskrifar en… Tískufyrirbrigði er eitt orð.

Re: Skyldleiki.

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Eins og merkileg kona sagði: “I am no man”. Bölvað rugl er þetta.

Re: Breytingarnar

í Spenna / Drama fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Hafðu Law and Order þættina.

Re: Skyldleiki.

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Nei, auðvitað ekki. Ég er að tala um það sem Sveipur skrifar. Hann er alltaf að koma með svona 5 svör í röð.

Re: Skyldleiki.

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Þetta tek ég sem móðgun við konur.

Re: Skyldleiki.

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ef þú ert að reyna að skrifa málefnalega hér þýðir ekkert að þú sért að ákveða sjálfur fram og til baka einhverja ættliði, þetta er bara fáránlegt. Fyrir utan að það er mjög ansalegt að klára ekki eitt svar. Þú ert alltaf að koma með nokkur svör í röð, það virkar eins og þú sért alltaf að hugsa eitthvað nýtt og nýtt sem þú getir sagt á móti okkur hinum, reynu að koma með eitt almennilegt svar. Þetta virkar svona eins og þegar maður finnur ekkert gott til að svara einhverjum, og síðan eftir á...

Re: Skyldleiki.

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Það er ekkert “kannski”.

Re: Titill sjöttu Harry Potter bókarinnar afhúpaður:

í Harry Potter fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Þetta hljómar allt saman mjög spennandi. Bara eitt, hann rær í átt að eyðileggingunni, hann *róar ekki. Ég bara varð ;)

Re: Titill sjöttu Harry Potter bókarinnar afhúpaður:

í Harry Potter fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Góð ágiskun.

Re: Ættfræðiáhugamál

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Alveg sammála þér. Þetta síðara þyrfti þó að vera eitthvað lokað ;)

Re: Skyldleiki.

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ert þú að svara mér? Þetta svar sem þú kemur með á eftir mínu síðasta áliti er ekkert í sambandi við það sem ég sagði. Reyndu nú að lesa yfir það sem þú skrifar, maður þarf að vera ansi tómur til að senda frá sér bæði rökleysu og illa máli farið efni! Það er eitthvað voðalega skrítið líka ef við öll hin erum eitthvað skrítin og niðri í soranum eins og þú segir, ætli að það sé ekki frekar öfugt þá, segi bara svona. Vona að það verði ekki tekið illa upp.

Re: Skyldleiki.

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ekki reyna að leiðrétta sjálfan þig, ég held að það sé bara ekkert betra. Ég myndi aldrei láta frá mér svona málfarslega rangan texta. Stafsetningin er líka alveg hræðileg. Bara því miður. Ekki að ég vilji vera að auglýsa, en þú ættir að skella þér í búð í dag og kaupa þér Púkann frá Friðriki Skúlasyni. Enn og aftur, þessi rök hjá þér eru alveg fáránleg, þetta er mesta vitleysa sem ég hef lesið lengi!

Re: Skyldleiki.

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Þú hefir nú getað eytt meiri tíma í málfræðinámið en að glápa á frænkur þínar; voðalega var erfitt að skilja þetta síðasta. Meinarðu að vera “sakaður” um sifjaspell? Sifjaspell er það þegar segjum, faðir eða móðir hefur holdlegt samræði við börn sín, þ.e. of náinn ættingja. Og hvaða rugl er það eiginlega að segja körlum að ná sér í útlenskar konur? Yfirleitt eru það nú þeir sem ekki ná sér í almennilega íslenska konu sem verða að leita til ýmissa fjarlægra landa til að ná í konu. Oftast eru...

Re: *SPOILER* - Frekar spurning

í Sápur fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Harold týndist nú einu sinni, datt út í sjó, og við munum öll þegar hann birtist minnislaus nokkrum árum síðar, fingers crossed :)

Re: Skyldleiki.

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Og ef ég má bæta einu við; þótt Grágás sé mjög merkilegt rit þá förum við ekki eftir henni í einu og öllu, mörg hundruð árum síðar, ekki frekar en Biblíunni.

Re: Skyldleiki.

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Grágás, farðu nú rétt með nafnið á eins merkilegu riti og þetta er.

Re: Skyldleiki.

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég verð að segja að ég er sammála öllum ofangreindum. Í fyrsta lagi er greinin mjög illa skipulögð og maður á í mestu vandræðum með að ná samhenginu. Í öðru lagi er niðurstaðan alveg fáránleg. Ef við mættum ekki giftast og eignast börn með neinum sem væri meira skyldur okkur en í 7. eða 8. lið þá myndum við sennilega gera hvorugt af þessu. Það er alveg ómögulegt að leita að maka út frá því í hvaða lið maður er skyldur viðkomandi, það myndi ganga frekar seint og illa, fyrir utan að gera okkur...

Re: í leit að öðrum

í Smásögur fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Sagan er nokkuð góð, gæti verið inngangur að lengri sögu. En, stafsetningin er, ég bara verð að segja það, mjög léleg. Þú þarft að lesa miklu betur yfir og helst láta einhvern annan lesa yfir fyrir þig líka. Það er alltaf leiðinlegt bæði að láta frá sér og lesa illa stafsett efni sem hægt hefði verið að bæta með yfirferð. Eins og einhver sagði vantar greinaskil, og ég sá á sumum stöðum ósamræmi í gæsalöppum (þess má geta að íslenskar gæsalappir opnast niðri og lokast uppi). Það þarf að vera...

Re: Ron í mestu andlegu jafnvægi

í Harry Potter fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ekki að þeir séu endilega leiðinlegir, en mér finnst að það mætti alveg hafa þá eitthvað afmarkaða. Það er þægilegra, mér finnst meira gaman að lesa greinar og maður er lengur að finna þær inn á milli.

Re: Greining mín á persónum í Harry Potter.

í Harry Potter fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég er ekkert endilega sammála þér, enda er þetta þitt mat. En mér finnst vanta umfjöllun um einn skemmtilegasta karakterinn; Hagrid.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok