Þú ert 15 ára gamall. Ég veit að það er hræðilegt að láta eldra fólk tala niður til sín, en málið er að í augum fullorðinna (þeirra sem semja lög, verja skjólstæðinga og fella dóma) þá eru 15 ára einstaklingar víst krakkar. Hvað þá 13. Þegar þú varst 6 ára þá fannst þér 10 ára krakkarnir vera unglingar… það er ekkert að marka hvernig maður lítur á þetta á meðan maður er ennþá að vaxa sjálfur, maður skiptir um viðhorf jafn oft og nærbuxur.