Þessar auglýsingar hafa ekki verið í það miklu mæli hingað til að það taki því að banna þær. Sér korkur væri þó eitthvað sem mætti athuga ef þetta fer að vinda uppá sig.
Athyglisvert að skoða svarta SR Sunnyinn á sömu síðu. Það er eins og eitthvað hafi komið fljúgandi og klippt í sundur afturbrettið og grillað svo vinstra afturljósið í leiðinni.
Það er annaðhvort þessara dekkjaverkstæða á Akureyri sem flytur Maragoni inn. Hef prófað þau í 14“ og fannst þau mjög mjúk en gallinn var sá að þau slitnuðu frekar hratt. Held nokkuð örugglega að Marangoni sé ekki fáanleg hérna á höfuðborgarsvæðinu. Svo var Gúmmívinnustofan að flytja inn sem heita Technic Tyre og þau eru á góðu verði, 16” fer ekki yfir 10 þús kallinn stykkið ef ég man þetta rétt.
450-475 þús stgr er dálítið mikið fyrir þetta mikinn keyrðan bíl því að þú mátt fara að búast við all hressilegu viðhaldi hvað úr hverju. Veit vel hvaða bíll þetta er og skoðaði hann sjálfur fyrir 4 árum rétt áður en ég verslaði mér Sunnyinn minn. Þáverandi eigandi hugsaði mjög vel um hann, bíllinn var alltaf stífglansbónaður og eigandinn tímdi ekki að skilja lyklana eftir hjá bílasalanum meðan bíllinn stóð þar. GTi-R húdd er ekki rice að mínu mati heldur bara mjög töff breyting en svona...
Átti svona bíl og þetta klassabílar. Tékkaðu á heimasíðu Bílgreinasambandsins, www.bgs.is, þar finnurðu viðmiðunarverð bílaumboðanna. Mismunandi ásett verð fer svo mikið eftir útliti, ástandi og fyrri störfum.
Það hlaut að koma að þessu miðaða við sögur um umgengni á og við brautina sem maður hefur verið að heyra undanfarin ár.. En hvernig í ósköpunum á að loka brautinni? Maður hefur heyrt af því að reynt hafi verið að loka með keðjum eða hliðum og það hafi allt verið rifið í burtu og sömu leið hafi risa grjót farið sem sett hafi verið á veginn uppá braut.
Þekki þessa bíla mjög vel og jú þeir eiga sumir til að ryðga dálítið mjög mikið. Ætti að reyna að redda sér svona bíl að norðan þar sem bílar þar virðast ryðga mun minna en bílarnir okkar hér í Rvk sem eru keyrðir í saltpækli nokkra mánuði á ári.
Veit ekki hver vann en sá að Bretar voru mjög kátir með árangur Bentley og í raun svo kátir að það kom uppástunga um að Bretar ættu að leggja kriketið á hilluna og snúa sér eingöngu að mótorsporti.
Eftir því sem ég veit best er enginn að selja MOMO hluti almennt en Impetus var í felgunum. ÁG eða önnur aukahlutabúð ætti hinsvegar að geta sérpantað fyrir þig þessa hluti.
Impetus var að selja MOMO álfelgur en sá draumur er úti eins og flestir vita. Þá er helst að tala við einhverjar af eftirlifandi aukahlutabúðum og dettur mér þar í hug ÁG Mótorsport.
Undir öllum venjulegum kringumstæðum hefði ég giskað á pabba þinn en úr því þú ert að spyrja að því þá giska ég á trix spurningu og giska á mömmu þína……………..
Sýn er að sýna klukkutíma langan þátt á hverjum degi þegar WRC röll eru í gangi. Previewþáttur fyrir Acropolis Rally er í kvöld en rallið fer fram 15-17 júní.
Dump Valve gegnir tvíþættu hlutverki. Annarsvegar að passa að boost pressure rjúki ekki upp úr öllu valdi og grilli intercoolerinn og allar pípulagnirnar tengdar honum og hinsvegar að lágmarka turbo lag.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..