Aldrei nokkurn tímann hef ég keypt íslenska tónlist, né niðurhlaðið eða skrifað á disk. Ég kaupi margoft tóma geisladiska, sem aðallega eru notaðir undir afrit af einkadóti og frjálsan hugbúnað. Ég er greinilega ekki að fá það sem ég er búinn að borga fyrir fyrr en ég niðurhleð íslenskri tónlist, skrifa hana á disk, og dreifi því um allan bæ.