Fólk úr öllum þremur skólunum til samans, MH, Verzló og MR væru síðan væntanlega að gera lítið úr öðrum skólum fyrir að vera ekki einn af þremur “topp-skólum” á landinu. Hehe, en eru það fordómar ef þetta er satt? :þ
Og ef tvær stelpur þurfa að kvarta undan því sama hjá mömmum sínum er um að gera að halda því í einum þræði.Tilveran hefur að venju ekki verið notuð þannig, forsíðan einnig. Þar sem bara nýjustu 5 korkarnir eru sýndir, og 5 til viðbótar þegar þú ert að skoða kork þá les fólk venjulega ekki gamla korka sem eru ekki í heitum umræðum. Ekki það að frumlegt nöldur í hverri viku væri ágætis skemmtun. Kannski maður dembi sér bara í það.Ég bíð spenntur.
Frelsisskerðingum íslenskra ríkisborgara, eða þeirra sem hafa aflað sér leyfi til þess að koma hingað. Íslenska ríkið og lögin eru fyrst og fremst til þess að vernda okkur. Bætt við 6. apríl 2009 - 23:57 Íslensku lögin átti ég við.
Það tæki þig nú samt ekki langan tíma að venjast því að sjá hluti á hvolfi ef þú værir t.d. með spes gler-augu til þess. Þá þyrftirðu ekki að hafa áhyggjur af hausverk og alvarlegri kvillum. Þú myndir ennþá sjá hluti á hvolfi samt.
Visslega koma tískubylgjur, en ef að mamma einhverrar stelpu er leiðinleg, af hverju má þá önnur stelpa ekki kvarta líka undan sinni mömmu? Verður hún eitthvað minna leiðinleg fyrir vikið? En hvað heldurðu að þú finnur í nöldurkorkinum á huga? Frumlegt nöldur í hverri viku? Og allavega er nöldur skv. minni skilgreiningu nokkurs konar samheiti yfir væl og leiðindi í vissum skilningi.
Ég er ekki að tala um að vanda sig, maður skrifar almennt bara ekki eikka, meikar, sjitt, obboslega, svoldið, dáldið og fleiri sambærileg orð. Þó skrifa margir þau en þau eiga bara ekkert heima í ritmáli í þessari mynd.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..